Mál nr. 91/2014 úrskurður 5. desember 2014
Mál nr. 91/2014 Eiginnafn: Lýra
Hinn 5. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2014 en erindið barst nefndinni x. nóvember:
Eiginnafnið Lýra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lýru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lýra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.