Embætti héraðsdómara laus til umsóknar
Dómsmálaráðherra, samkvæmt tillögu dómstólaráðs, auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsdómara. Embættið er veitt frá og með 1. febrúar 2004. Mun dómarinn, fyrst um sinn, ekki eiga fast sæti við tiltekinn héraðsdómstól, sbr. heimild í 1. mgr. 15. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Fyrsta starfsstöð dómarans verður héraðsdómur Reykjavíkur en auk starfa þar verða honum einnig falin verkefni meðal annars við héraðsdóm Suðurlands og héraðsdóm Vesturlands.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi, eigi síðar en 1. desember 2003.
Dómsmálaráðherra, samkvæmt tillögu dómstólaráðs, auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur. Embættið er veitt frá og með 1. febrúar 2004. Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi, eigi síðar en 1. desember 2003.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar.
Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.