Fyrstu friðlýsingar rammaáætlunar
„Þetta er afar mikilvægt skref sem hér er stigið í náttúruvernd á Íslandi,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Svæðin þrjú eru öll í verndarflokki rammaáætlunar samkvæmt samþykkt Alþingis frá árinu 2013. Þau ber því að friðlýsa gegn orkunýtingu. Unnið er að því, sem og friðlýsingum fleiri svæða í verndarflokki.
„Það er ánægjulegt að sjá fyrstu svæðin send út til kynningar nú í dag. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um sérstakt átak í friðlýsingum, meðal annars friðlýsingu svæða í verndarflokki rammaáætlunar en líka svæða á eldri náttúruverndaráætlunum. Þessar friðlýsingar hafa verið samþykktar af Alþingi en hafa enn ekki náð fram að ganga,“ segir Guðmundur Ingi.
Stefnt er að því á næstu vikum að leggja fram til kynningar önnur friðlýsingaráform sem falla undir verndarflokk rammaáætlunar. Frestur til athugasemda við tillögurnar sem auglýstar voru í morgun hjá Umhverfisstofnun til og með 14. desember.