Samtal um aðgerðaáætlun í ferðamálum til 2030 í Reykjavík
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra heldur þessa dagana opna umræðu- og kynningarfundi um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 víðs vegar um landið. Á morgun, miðvikudaginn 28. febrúar kl. 15 fer fram slíkur fundur í Reykjavík.
Fundurinn er á Hilton Reykjavík Nordica kl. 15 og verða léttar veitingar í móttöku á eftir. Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!
Vinsamlegast skráið mætingu hér!
Fyrstu drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Drögin eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári.
Athugið að fundurinn í Reykjavík hefst kl. 15:00.
Sjá einnig: