Hoppa yfir valmynd
22. október 2018 Forsætisráðuneytið

Skátar afhentu forsætisráðherra verkefnapakka um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Þuríði, Heiðbrá, Mörtu og Andra - mynd

Þau Þuríður, Heiðbrá og Andri, skátar úr Garðabæ og Vesturbæ, og Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands, heimsóttu Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í gær. Skátarnir afhentu forsætisráðherra nýjan verkefnapakka í tilefni af þriggja ára afmæli Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna undir yfirskriftinni „Byggjum betri heim“. 

Verkefnapakkinn fjallar um Heimsmarkmiðin og inniheldur leiki og verkefni fyrir alla aldurshópa í skátunum. Markmið efnisins er að fræða skáta um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og veita þeim innblástur um hvernig þeir, í sínu daglega lífi og með sínum skátaflokkum, geta tekið ábyrgð í því umhverfi sem þeir búa í og gætt hvers annars, samfélagsins og náttúrunnar.

Nánari upplýsingar um verkefnapakkann má finna hér: https://www.skatamal.is/byggjum-betri-heim/


  • Þuríður, Heiðbrá og Andri skátar úr Garðabæ og Vesturbæ ásamt Mörtu, skátahöfðingja Íslands, heimsóttu Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra - mynd
  •   - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta