Rangfærslur um skattalækkun leiðréttar
Vegna rangfærslna í umfjöllun um breytingar á tekjuskattskerfinu á næsta ári og skattalækkun sem kynnt var í tengslum við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2020 vill fjármála- og efnahagsráðuneytið taka eftirfarandi fram:
Lægri skattar á næsta ári
Kynnt hefur verið skattalækkun í tveimur áföngum í stað þriggja, 1. janúar 2020 og 1. janúar 2021. Mun ábati hennar skila sér strax til allra tekjutíunda. Þegar lækkunin er að fullu komin fram munu ráðstöfunartekjur heimilanna aukast um 21 ma.kr. á ári. Fyrir einstaklinga með tekjuskattsstofn í kringum 350 þúsund krónur þýðir það 125 þúsund króna skattalækkun á ári.
Strax um áramót kemur til framkvæmda fyrri hluti skattkerfisbreytingarinnar. Skattgreiðslur fólks með tekjur við fyrstu þrepamörkin munu lækka um 42 þúsund krónur á næsta ári. Þá hefur að sjálfsögðu verið tekið tillit til lækkunar persónuafsláttar sem beitt er í samspili við upptöku nýs lægsta þreps, til að beina þunga lækkunarinnar til þeirra sem eru um eða undir meðaltekjum.
Einnig telur fjármála- og efnhagsráðuneytið rétt að benda á að hækkun persónuafsláttar í stað nýs grunnþreps hefði ekki skilað meiri ávinningi til tekjulægstu hópanna. Sú aðferð hefði þvert á móti skilað mun minni ávinningi til lágtekjuhópa og hefði auk þess skilað sömu krónutölu upp allan tekjustigann. Lækkun persónuafsláttar hefði þannig einungis í för með sér 5.800 kr. ávinning og hefði sá ávinningur farið upp allan tekjustigann. Hefði hækkun persónuafsláttar átt að skila 10þ. kr. hærri ráðstöfunartekjum hefði slík breyting kostað ríflega 31 ma.kr.
Samsköttun hjóna og sambúðarfólks
Samsköttun hjóna/sambúðarfólks sem gerir fólki kleift að samnýta persónuafslátt verður áfram heimil í skattkerfinu. Að auki er rétt að árétta að heimild til samnýtingar skattþrepa, sem innleidd var í skattkerfið 2010, verður einnig óbreytt í nýju skattkerfi. Það er því rangt sem haldið hefur verið fram að verið sé að hækka skatta um 3 ma. kr. Breytingar á skattkerfinu munu þvert á móti lækka skatta allra tekjutíunda og skila sem fyrr segir 21 ma.kr. í auknar ráðstöfunartekjur á ári til heimilianna.