Fjölmenni á fyrstu Evrópuráðstefnu félagsráðgjafa
Um 500 félagsráðgjafar, þar af um 300 erlendir gestir víðs vegar að úr heiminum tóku þátt í ráðstefnunni sem Félagsráðgjafafélag Íslands stóð fyrir og velferðarráðuneytið styrkti. Fjallað var um mikilvægi þess að hvert samfélag geri ráð fyrir öllum þegnum sínum og skapi rými fyrir félagslega þátttöku allra. Viðurkenna þurfi að ýmsir hópar samfélagsins þurfi meiri aðstoð en aðrir og mæta þörfum þeirra með viðeigandi hætti.
Meðal umfjöllunarefna voru málefni flóttafólks, einnig var fjallað um græna félagsráðgjöf og hlýnun jarðar sem ógn við fólk sem býr í mikilli fátækt og við erfið skilyrði. Hlýnun jarðar hefur áhrif á búsetuskilyrði fólks og hefur það sýnt sig að þeir sem minnst hafa á milli handanna verða verst úti í þessum aðstæðum.
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, ræddi um það í ræðu sinni hvernig sjálfbærni helst í hendur við aðkomu allra að samfélagi án aðgreiningar. Þar þurfi m.a. að horfa til jafnrar þátttöku kynjanna og sagði hann ljóst að samfélagið gæti ekki orðið sjálfbært ef kynin sætu ekki við sama borð og fengju ekki jöfn laun fyrir sömu vinnu. Fyrir þessi orð sín uppskar ráðherra lófaklapp.
Þorsteinn sagðist telja að starf félagsráðgjafa hefði líklega aldrei verið jafn mikilvægt og um þessar mundir. Hann vísaði til fjölgunar flóttafólks sem þyrftu á miklum stuðningi að halda og benti einnig á vanda sem stafaði af því að öfgafullar skoðanir hefðu færst í aukana. Fagleg nálgun félagsráðgjafa á samfélagið í heild, nærsamfélagið, fjölskyldur og einstaklinga væri vel til þess fallin að efla heildina og styrkja alla til félagslegrar þátttöku í samfélaginu.