Hoppa yfir valmynd
27. júní 2006 Dómsmálaráðuneytið

Aðildarsamkomulag að evrópska lögregluskólastarfinu undirritað

Fulltrúar Lögregluskóla ríkisins, norska lögregluháskólans og evrópska lögregluskólastarfsins (CEPOL) undirrituðu í dag aðildarsamkomulag Íslands og Noregs að evrópska lögregluskólastarfinu . Undirritunin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu og staðfesti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra samkomulagið.
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL

Fréttatilkynning
25/2006

Fulltrúar Lögregluskóla ríkisins, norska lögregluháskólans og evrópska lögregluskólastarfsins (CEPOL) undirrituðu í dag aðildarsamkomulag Íslands og Noregs að evrópska lögregluskólastarfinu. Undirritunin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu og staðfesti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra samkomulagið.

Fyrir Lögregluskóla ríkisins þýðir þessi aðild að opnað er á nánara samstarf við evrópska lögregluskóla um þjálfun og upplýsingaskipti. Meginviðfangsefni CEPOL eru að efla samstarf og virkni lögregluliða, miðla upplýsingum um niðurstöður rannsókna og starfsvenjur og annast þjálfunarnámskeið fyrir háttsetta lögreglumenn. Viðfangsefnin tengjast jafnan baráttunni gegn afbrotum, s.s. afbrotum yfir landamæri innan Evrópu, viðnámi gegn hryðjuverkum, ólöglegum innflytjendum, landamæravörslu, mannsali og hvers konar alþjóðlegri glæpastarfsemi.

Munu lögregluskólarnir verða virkir þátttakendur í starfi CEPOL og fá aðgang að rafrænu netkerfi CEPOL ásamt námsneti evrópskra lögregluliða.

Við undirritunina er lögregluskólum utan Evrópusambandsins í fyrsta sinn veitt aðild að evrópska lögregluskólastarfinu.

Reykjavík 27. júní 2006



Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL
Björn Bjarnason undirritar aðildarsamkomulag Lögregluskóla ríkisins að CEPOL

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta