Hoppa yfir valmynd
1. október 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 37/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 1. október 2009 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 37/2009.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 31. mars 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hafi tekið fyrir umsókn hans um styrk vegna búferlaflutninga, dags. 20. febrúar 2009. Hafi stofnunin fallist á að endurgreiða 21.600 kr. af útlögðum kostnaði, þ.e. 80% af 27.000 kr. kostnaðar vegna leigu á sendibifreið. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 2. apríl 2009. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Í erindi kæranda kemur fram að hann sótti um búferlastyrk þann 20. febrúar 2009 á grundvelli reglugerðar nr. 12/2009. Kærandi hafði þá lokið flutningunum, greitt útlagðan kostnað og uppfyllt önnur skilyrði. Kærandi segir hann og sambýliskonu hans hafa orðið að flytja úr X  að Y. Hafi flutningurinn verið nauðsynlegur vegna vinnu hans að nýsköpunarverkefni sem honum bjóðist aðstaða til að sinna í Y sem ekki hafi verið fyrir hendi á Suðurlandi. Kærandi kveðst hafa ákveðið, í ljósi lítilla efna og óvissu um endurgreiðslu, að spara sem mest í kostnaði við flutningana. Hafi hann ekið mestum hluta búslóðar­innar á sinni bifreið, með sinni kerru og borið allt sjálfur með aðstoð ættingja sinna. Hafi hann einnig leigt sendibifreið fyrir það stærsta og ekið henni sjálfur. Fyrir hafi legið tilboð flutningafyrirtækis um flutningana og hafi það numið um 170.000 kr. með allri vinnu og akstri. Kærandi telur sig hafa sætt mismunun og að sér sé refsað fyrir að gæta aðhalds og sparnaðar. Það sé augljóst af afgreiðslu Vinnumálastofnunar að ef hann hefði farið dýrustu leiðina, þ.e. fengið flutningafyrirtæki til að sjá um flutningana að öllu leyti og setið aðgerðalaus hjá, hefði Vinnumálastofnun greitt 80% alls kostnaðarins. Verði ákvörðun Vinnumálastofnunar hins vegar staðfest sitji hann upp með allan eldsneytiskostnað af sinni bifreið, mikið slit á bíl og kerru, þrálátan bakverk, frátafir frá sínu verkefni og frátafir ættingja úr vinnu.

Í umsókn kæranda kemur fram að um sé að ræða sjö ferðir á eigin bíl að fjárhæð 84.000 kr., leiga sendibifreiðar að fjárhæð 27.000 kr. og lítilsháttar þóknun sem kærandi hafi rétt ættingjum sínum að fjárhæð 25.000 kr. eða samtals 136.000 kr. Vinnumálastofnun hafi einungis fallist á lítinn hluta þessarar fjárhæðar og hafi hún sent kæranda reglugerð nr. 12/2009 með svari sínu. Það sé athyglisvert að neðan við reglugerðina hafi einhver bætt viðbót þar sem standi: „Nánari reglur um 15. gr. lið f.“ Þessi viðbót sé ekki í reglugerðinni og hafi hún ekki lagastoð. Af hálfu kæranda kemur fram að reglugerð nr. 12/2009 hafi verið sett með það fyrir augum að gera atvinnulausu og efnalitlu fólki kleift að flytja milli landsvæða til að sækja sér atvinnu eða atvinnuígildi eins og hér um ræði. Kærandi kveðst hafa lagt fram afrit af nótum sendibifreiðaleigunnar og afrit af bensínúttektum vegna eigin bifreiðar. Hann ítrekar þær kröfur sem hann setti fram í umsókn sinni. Að öðrum kosti fer hann fram á mat hlutlausra aðila á umfangi búslóðarinnar og réttmætum styrk í framhaldi af því mati. Hann fer einnig fram á að afmáðar verði hinar óréttlátu viðbætur Vinnumálastofnunar við reglugerðina og að réttkjörinn ráðherra sjái um nánari útfærslur á reglugerðinni sé þess þörf.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 12. maí 2009, kemur fram að það sé ljóst af 14. gr. reglugerðar nr. 12/2009 að ekki sé mælt fyrir um það hversu háir styrkir til búferlaflutninga skuli vera né nákvæmlega hvað skuli styrkt. Eingöngu sé mælt fyrir um að styrkurinn nái bæði til flutnings á fjölskyldu atvinnuleitanda og á búslóð hans. Af 18. gr. reglugerðarinnar megi síðan ráða að almennt sé ætlast til þess að þeir sem nýti sér styrkinn sæki um hann eftir að búferlaflutningurinn hafi farið fram. Ljóst sé því að nauðsynlegt sé að fara skuli fram einstaklingsbundið mat á umsóknum þeirra sem sæki um styrki til búferlaflutninga. Vinnumálastofnun hafi sett sér ákveðnar verklagsreglur varðandi endurgreiðslu á kostnaði vegna búferlaflutninga. Tilgangur verklagsreglnanna sé að gæta samræmis og jafnræðis í stjórnsýsluframkvæmd. Þær leiði einnig til aukinnar skilvirkni hjá stofnuninni. Í fyrrnefndum verklagsreglum segi að heimilt sé að endurgreiða: Kaup á þjónustu sendibíla og flutningafyrirtækja hér á landi og sjó, leigu á sendibíl, vöru- eða flutningabíl og fargjöld fjölskyldumeðlima með hópferðabílum eða flugfélagi. Miðist þessar reglur við að eingöngu sé veittur styrkur vegna hóflegs flutningskostnaður, svo sem vegna sendingar búslóðar með sendibíl eða flutningafyrirtæki eða leigu á sendibíl eða flutningabíl ef styrkþegi kjósi frekar að aka með búslóð sína sjálfur. Ekki sé gert ráð fyrir að styrkþegar geti nýtt sér þjónustu flutningafyrirtækis með þeim hætti að fyrirtækið pakki saman búslóð og sjái um allan flutning bæði út af gamla heimilinu og til þess nýja og gangi þar frá búslóð aftur. Ekki sé heldur gert ráð fyrir að hægt sé að biðja um endurgreiðslu vegna þrifa á gamla heimilinu né að launað sé ættingjum eða vinum sem leggi hönd á plóginn með styrkþega. Af hálfu Vinnumálastofnunar kemur loks fram að þegar um sé að ræða matskenndar stjórnvaldsákvarðanir sé viðurkennt í stjórnsýslurétti að ekki megi takmarka mjög hið skyldubundna mat stjórnvaldsins eða fella það úr gildi með verklagsreglum. Að mati Vinnumálastofnunar sé ljóst að verklagsreglur þær sem stofnunin byggi á séu málefnalegar í eðli sínu og takmarki ekki það skyldubundna mat sem stofnunin beri að framkvæma heldur mæla fyrir um þau viðmið sem stofnunin skuli hafa í huga við búferlastyrki.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. maí 2009, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 28. maí 2009. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Kærandi í máli þessu unir þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að greiða honum 80% styrk vegna leigu sendibifreiðar að fjárhæð 27.000 kr. en telur sig eiga rétt á styrk vegna aksturs eigin bifreiðar að fjárhæð 84.000 kr. og vegna greiðslu til aðstoðarfólks að fjárhæð 25.000 kr. Fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hafa ekki verið lögð fram gögn um þá kostnaðarliði sem um er deilt í þessu máli en fram kemur í kæru að kærandi hafi lagt fram afrit af bensínúttektum eigin bifreiðar til Vinnumálastofnunar. Þann kostnaðarlið taldi kærandi eiga að reikna þannig að hann hefði farið sjö ferðir, margfaldað með 240 km og margfaldað með 50 kr. fyrir hvern keyrðan kílómetra eða samtals 84.000 kr. Hinn kostnaðarliðurinn stafar af greiðslu kæranda til vandamanna sem aðstoðuðu hann við flutningana.

Í 62. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að heimilt sé að veita sérstaka styrki vegna búferlaflutninga hins tryggða innan lands vegna starfstilboða og er félagsmálaráðherra gert að setja nánari reglur þar að lútandi. Í 14. gr. reglugerðar nr. 12/2009, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki, segir meðal annars að Vinnumálastofnun sé heimilt að veita sérstaka styrki vegna búferlaflutnings atvinnuleitanda í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum vinnuveitanda. Styrkurinn nær bæði til flutnings á fjölskyldu atvinnuleitanda og á búslóð hans. Af 18. gr. reglugerðarinnar leiðir að umsókn um búferlaflutning skuli fylgja nauðsynleg fylgigögn, svo sem frumrit reikninga fyrir kostnaði vegna búferlaflutnings.

Vinnumálastofnun hefur sett verklagsreglur um endurgreiðslu á kostnaði vegna búferlaflutninga og eru þær birtar á vef stofnunarinnar. Samkvæmt þeim er heimilt að endurgreiða eftirfarandi útlagðan kostnað samkvæmt framlögðu afriti af reikningum; kaup á þjónustu sendibíla og flutningafyrirtækja á landi og sjó, leigu á sendibíl, vöru- eða flutningabíl og fargjöld fjölskyldumeðlima með hópferðabílum eða flugfélagi.

Eins og lýst er hér að framan þá gera reglugerðarákvæði ráð fyrir að styrkur vegna búferlaflutninga nái til flutnings á fjölskyldu atvinnuleitanda og á búslóð hans en að slík styrkveiting verði að vera reist á nauðsynlegum fylgigögnum, svo sem frumriti reikninga fyrir útlögðum kostnaði. Með hliðsjón af þessu verður ekki talið að kærandi hafi lagt fram fullnægjandi gögn til að réttlæta styrkveitingu vegna þeirra kostnaðarliða sem um er deilt í þessu máli. Þessi niðurstaða byggir á að styrkþega sé skylt að sýna fram á kostnað sinn með haldbærum gögnum til að geta fengið einstaka kostnaðarliði styrkta en telja verður að afrit af bensínúttektum til eigin nota falli þar ekki á meðal. Jafnframt verður ekki talið að greiðsla til aðstoðarfólks við búferlaflutninga samrýmist 14. gr. reglugerðarinnar auk þess sem að engin gögn hafa verið lögð fram um þann kostnað kæranda. Af þessum ástæðum verður hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun um greiðslu búferlastyrkja til A er staðfest.

 

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

 

3.

Sératkvæði Brynhildar Georgsdóttur

Í 62. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að heimilt sé að veita sérstaka styrki vegna búferlaflutninga hins tryggða innan lands vegna starfstilboða og er félagsmálaráðherra gert að setja nánari reglur þar að lútandi. Í 14. gr. reglugerðar nr. 12/2009, sem fjallar meðal annars um búferla­styrki, segir að Vinnumálastofnun sé heimilt að veita styrki vegna búferlaflutnings atvinnuleitanda í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum vinnuveitanda. Styrkurinn nái bæði til flutnings á fjölskyldu atvinnuleitanda og á búslóð hans. Í 15. gr. reglugerðarinnar segir að atvinnuleitandi skuli þegar hafa lagt út fyrir kostnaði vegna flutninganna. Í 18. gr. segir að umsókn um styrk skuli fylgja nauðsynleg fylgigögn, svo sem frumrit reikninga fyrir kostnaði vegna búferlastyrks.

Vinnumálastofnun hefur sett verklagsreglur um endurgreiðslu á kostnaði vegna búferlaflutninga og eru þær birtar á vef stofnunarinnar. Samkvæmt þeim er aðeins heimilt að endurgreiða eftirfarandi útlagðan kostnað samkvæmt framlögðu afriti af reikningum; kaup á þjónustu sendibíla og flutningafyrirtækja á landi og sjó, leigu á sendibíl, vöru- eða flutningabíl og fargjöld fjölskyldu­meðlima með hópferðabílum eða flugfélagi. Almennt verður að telja skynsamlegt og til marks um góða stjórnsýslu að setja slíkar verklagsreglur. Á hinn bóginn mega verklags­reglurnar ekki vera svo þröngar að heimildin sem þær byggjast á nái ekki tilgangi sínum. Telja verður að með því að greiða aðeins styrk vegna þeirra kostnaðarliða sem tilgreindir eru í verklagsreglum Vinnumálastofnunar hafi stofnunin þrengt svo svigrúmið til styrkveitinga að lög og reglugerð um búferlastyrki nái ekki tilgangi sínum. Í ljósi þess að niðurstaða mála virðist alfarið byggð á umræddum verklagsreglum virðist stofnunin að auki hafa takmarkað hið skyldubundna mat sem henni ber að framkvæma.

Vinnumálastofnun féllst á að veita kæranda styrk vegna kostnaðar við leigu á sendibifreið, en hafnaði beiðni um styrk vegna kostnaðar við akstur með eigin bifreið og kerru og þóknunar til ættingja. Telja verður eldsneytiskostnað svo nauðsynlegan hluta flutningskostnaðar að ekki sé hægt að líta fram hjá honum. Í því sambandi ætti ekki að skipta máli hvort eldsneytiskostnaður fellur til hjá eiganda sendibíls sem selur umsækjanda þjónustu sína eða við akstur umsækjanda á eigin ökutæki. Synjun á greiðslu eldsneytiskostnaðar atvinnuleitanda sjálfs virðist ekki aðeins andstæð tilgangi reglugerðarinnar heldur einnig ósanngjörn, en hún leiðir til þess að kostnaður þess sem leitast við að gæta hófs í flutningskostnaði með því að aka sjálfur verður meiri en þess sem kaupir þjónustuna að fullu af þriðja aðila. Á hinn bóginn er fallist á þau rök stofnunarinnar að styrkur skuli aðeins ná til hóflegs flutnings­kostnaðar og hvorki verði bættur kostnaður vegna launa til ættingja sem aðstoða við flutninga né kostnaður sem er byggður á útreiknuðu kílómetragjaldi.

Kærandi kveðst hafa lagt fram afrit af nótum vegna bensínúttektar vegna eigin bifreiðar. Geti hann sýnt fram á að umræddur kostnaður hafi fallið til vegna búferlaflutninga verður að teljast eðlilegt og í samræmi við tilgang reglna um búferlaflutninga að hann fái þann kostnað bættan. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið telst kærandi eiga rétt á styrk vegna eldsneytiskostnaðar, framvísi hann frumriti greiðslukvittana og geri það almennt sennilegt að kostnaðinn megi rekja til búferlaflutninga vegna atvinnuleitar hans, sbr. 14. gr. reglugerðar 12/2009.

 

Úrskurðarorð

Kærandi, A, á rétt á styrk vegna eldsneytiskostnaðar sem rekja má til búferlaflutninga vegna atvinnuleitar hans.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta