Hoppa yfir valmynd
30. mars 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Breyttar reglur á landamærum um sýnatöku og sóttkví 1. apríl

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

ATH! Reglugerð þessa efnis fellur úr gildi frá og með 9. apríl með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri vegna COVID-19. Þar með breytast reglurnar og má sjá þær hér. Tilkynning um aðgerðir á landamærum sem taka gildi 9. apríl.

Upplýsingar hér að neðan falla úr gildi frá og með 9. apríl.

  • Börn fædd 2005 eða síðar skulu fara í sýnatöku á landamærum Íslands frá og með 1. apríl næstkomandi. 
  • Gerð verður krafa um að farþegar sem framvísa bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrri sýkingu fari í eina sýnatöku við komuna til landsins.
  • Allir farþegar sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum skulu dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi milli fyrri og síðari sýnatöku.
  • Allir farþegar skulu forskrá fyrir komuna til landsins hvaða dag þeir fara aftur af landi brott, liggi það fyrir.
  • Frá og með 11. apríl verður innheimt gjald fyrir dvöl í sóttvarnahúsi. 
Heilbrigðisráðherra setur reglugerð um ofangreindar breytingar sem gerðar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Nánar

Sýnataka og sóttkví barna: Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýnatöku á landamærunum. Ferðist barn með einstaklingi sem skylt er að sæta sóttkví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sóttkví ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ef samferðamaðurinn er undanþeginn sóttkví er barnið það sömuleiðis. Barn sem ferðast eitt þarf ekki að fara í sóttkví.

Sýnataka hjá einstaklingum með vottorð: Krafa um sýnatöku hjá einstaklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbendinga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Krafan er tímabundin og verður endurskoðuð fyrir 1. maí.

Skilgreind áhættusvæði: Þeir sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum skulu dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi. Þetta á við farþega frá löndum eða landsvæðum þar sem 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa er yfir 500 (dökkrauð svæði) eða fullnægjandi upplýsingar um svæðið liggja ekki fyrir (grá svæði), samkvæmt upplýsingum frá Sóttvarnastofnun Evrópu, sbr. meðfylgjandi listi yfir þau lönd sem um ræðir. Áætlað er að listinn verði næst uppfærður 9. apríl nk.

Sérstakar varúðarráðstafanir

Ráðstafanir vegna falsaðra vottorða: Ef minnsti grunur vaknar um að einstaklingur hafi framvísað fölsuðu vottorði verður hann skyldaður í tvöfalda sýnatöku með sóttkví á milli í sóttvarnahúsi.


Ef dvalartími er stuttur: Farþega er skylt að forskrá brottfarardag frá Íslandi liggi hann fyrir. Ef dvalartími er skemmri en nemur áskildum tíma í sóttkví verður það kannað sérstaklega, enda hætt við að viðkomandi muni ekki fylgja reglum um sóttkví.

Gjaldtaka vegna dvalar í sóttvarnahúsi frá 11. apríl

Frá 11. apríl skulu þeir sem dvelja í sóttvarnahúsi greiða gjald fyrir dvöl í sóttvarnahúsi. Gjaldið nemur 10.000 kr. fyrir herbergi hverja nótt og er fæði innifalið. Gildir þá einu hvort einn dvelur í herberginu eða fleiri einstaklingar sem ferðast saman. 

  • Listi yfir lönd/landsvæði sem eru dökkrauð eða grá
  • Reglugerðin (hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar)
     

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta