Staða bókasafns- og upplýsingafræðings í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir stöðu bókasafns- og upplýsingafræðings í skjala- og bókasafni ráðuneytisins lausa til umsóknar.
Verkefni:
- Þátttaka í daglegum rekstri skjalasafnsins
- Fræðsla og þjónusta við starfsmenn ráðuneytisins á sviði skjala- og upplýsingamála, þ.m.t. notkun Lotus Notes skjalastjórnarkerfisins Málaskrár
- Önnur verkefni sem tengjast skjala og upplýsingamálum ráðuneytisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áskilið er BA-próf í bókasafns- og upplýsingafræði að lágmarki
- Þekking og reynsla af skjalastjórn og rafrænum skjalastjórnarkerfum
- Góð íslenskukunnátta ásamt kunnáttu í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli
- Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Launakjör eru samkvæmt samningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Um er að ræða fullt starf og heyrir starfsmaðurinn undir skjala- og upplýsingastjóra ráðuneytisins. Æskilegt er að starfsmaður hefji störf í byrjun febrúar 2008.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík eigi síðar en 17. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ólafsdóttir, skjala- og upplýsingastjóri ráðuneytisins, í síma 545 8700.