Hoppa yfir valmynd
9. september 2019 Utanríkisráðuneytið

Hægt að útrýma malaríu fyrir miðja öldina

Gleðifréttir fyrir börn í Afríku. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Að mati fræðimanna ætti að vera unnt að útrýma malaríu eða mýrarköldu um miðja þessa öld. Malaría er einn skæðasti og banvænasti sjúkdómur sem mannkynið hefur glímt við um aldir. Hópur rúmlega fjörutíu fræðimanna birti grein í gær í læknatímaritinu The Lancet þar sem þeir staðhæfa með vísan í faraldsfræðilegar og fjárhagslegar greiningar að fyrir árið 2050 sé mögulega unnt að útrýma malaríu „með réttum tækjum, réttum aðferðum og nægu fjármagni,“ eins og þeir segja í grein sinni.

„Útrýming malaríu hefur alltof lengi verið fjarlægur draumur, en nú höfum við sannanir fyrir því að unnt sé að uppræta malaríu fyrir árið 2050,“ segir Richard Feachem sem stýrir alþjóðlegum lýðheilsuhóp við Kaliforníuháskóla í San Francisco.

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar framfarir í baráttunni gegn malaríu. Malaríutilvikum hefur fækkað um 36% og dauðsföllum af völdum sjúkdómsins hefur fækkað um 60%. Í greininni í The Lancet er hins vegar varað við því að árangri tveggja síðustu áratuga sé teflt í tvísýnu vegna skorts á fjármagni og þeirrar staðreyndar að í 55 þjóðríkjum í Afríku, Asíu og rómönsku Ameríku fjölgi malaríutilvikum. Þau eru langflest í Afríkuríkjum og rúmlega þriðjungur tilvika í aðeins tveimur löndum: Nígeríu og Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.

Á síðasta ári greindust 219 milljónir manna með malaríu og þar af létust 435 þúsund, mikill meirihluti börn og sérstaklega kornabörn. Samkvæmt tölfræðinni deyr barn af völdum malaríu aðra hverja mínútu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta