Hoppa yfir valmynd
26. júní 2024

​ Fækkað um 4 stofnanir í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Fréttapóstar vegna breytinga á stofnanaskipulagi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins eru eingöngu sendir á starfsmenn ráðuneytisins og stofnana þess.

Alþingi samþykkti um helgina frumvörp um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun.

Umhverfis- og orkustofnun

Með staðfestingu laga um Umhverfis- og orkustofnun tekur hin nýja stofnun við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar. Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Megintilgangur nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar er að stuðla að því að markmið stjórnvalda um loftslagsmál gangi eftir, auk þess að leggja áherslu á sjálfbæra og ábyrga nýtingu auðlinda með náttúruvernd og lágmörkuð umhverfisáhrif að leiðarljósi.

Ný Umhverfis- og orkustofnun tekur  til starfa 1. janúar 2025.

Ný Náttúruverndarstofnun

Ný Náttúruverndarstofnun tekur við þeirri starfsemi er lítur að náttúruvernd hjá Umhverfisstofnun og starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, þ.m.t. Vatnajökulsþjóðgarðs og Snæfellsjökulsþjóðgarðs, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar, sem og eftirliti á ofangreindum sviðum.

Ekki verður skipuð sérstök stjórn yfir hinni nýju stofnun, heldur munu svæðisstjórnir fara með umsjón tiltekinna landfræðilega afmarkaðra svæða í umboði ráðherra og er lögð áhersla á að efla og viðhalda það skipulag sem skilað hefur góðum árangri við stefnumótun um stjórnun og vernd innan þjóðgarðanna. 

Ný Náttúruverndarstofnun tekur til starfa 1. janúar 2025.

Sameining Þingvallaþjóðgarðar og Minjastofnunar áfram til skoðunar

Þingvallaþjóðgarður og Minjastofnun sameinast ekki Náttúruverndarstofnun í þessum áfanga, en umhverfis- og samgöngunefnd fól ráðherra að halda áfram að skoða sameiningar þessara stofnana. Þá verður áfram  unnið að því að efla samstarf stofnananna og skoða samþættingu eða flutning einstakra verkefna.

SVS sameinast HA

Alþingi samþykkti enn fremur niðurlagningu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og munu verkefni stofnunarinnar sameinast Háskólanum á Akureyri frá og með 1. janúar 2025.

Vinnan framundan

Nú hefst vinna við að innleiða breytingar á stofnanaskipulaginu og settur verður á fót stýrihópur til að vinna að framgangi verkefnisins með þátttöku stjórnenda og starfsmanna viðkomandi stofnana. Störf forstöðumanna nýrra stofnanna verða auglýst á næstunni. Samruna- og uppskiptingaáætlun verður kynnt starfsmönnum þessara stofnana eins fljótt og hægt er.

Það er mikilvægt að vel takist til við verkefnið, en með stærri og öflugri stofnunum er hægt að sinna kjarnaverkefnum enn betur, en eins og við þekkjum öll erum málefni umhverfis og orkumála í stóra samhenginu ein mesta áskorun okkar tíma.  Með virkri þátttöku starfsfólks stofnana munum við ná að halda í og efla það sem vel er gert og styrkja þá þætti sem huga þarf betur að.

Með gildistöku laganna hefur stofnunum ráðuneytisins fækkað úr 13 í 9 á þessu ári. Lögin sem voru samþykkt um helgina á Alþingi eru liður í umfangsmiklum stofnanabreytingum sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur unnið að, ásamt undirstofnum, frá miðju ári 2022 og sem miða að því að skapa vettvang fyrir kraftmikið fagstarf og árangur. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum