Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Á nýjum og endurbættum vef er meðal annars:
• Náms- , stuðnings- og afþreyingarefni fyrir kennara og nemendur.
• Ýmsar fréttir og greinar sem fjalla um nýsköpunarmennt og tengd málefni.
• Lista yfir fyrirtæki og aðila sem vinna að eða eru tengdir skapandi skólastarfi, nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, forritunarnám fyrir börn o.fl.
• Kveikjur að hugmyndum, umsóknarleiðbeiningar, nýtt umsóknareyðublað og margt fleira.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk grunnskóla. Undirbúningur fer fram í skólum landsins samhliða skólaárinu þar sem nemendur fá kennslu við að þróa verkefni á sínu áhugasviði, allt frá hugmyndum til veruleika. Þetta ferli virkjar sköpunarkraft nemenda í lausnamiðuðum hugsunarhætti og eykur sjálfstraust þeirra og frumkvæði.
NKG hefst á haustin og lýkur á vorin með vinnusmiðju þar sem þátttakendur í úrslitum fá tækifæri til að útfæra hugmyndir sínar frekar með aðstoð leiðbeinenda frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og annarra samstarfsaðila. Í kjölfarið er haldið lokahóf þar sem forseti Íslands afhendir stórglæsileg verðlaun og viðurkenningarskjöl.
Eigandi NKG er mennta- og menningarmálaráðuneytið en Nýsköpunarmiðstöð Íslands sér um rekstur keppninnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Arion banka, Samtök Iðnaðarins, ELKO, IKEA, grunnskóla o.fl. aðila.