Fyrsta úthlutun úr hljóðritasjóði
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu stjórnar hljóðritasjóðs að veita 84 styrki í ár
Hljóðritasjóður var settur á stofn af mennta- og menningarmálaráðuneyti 1. apríl sl. og var Rannís falið að hafa umsjón með honum. Sjóðurinn hafði til ráðstöfunar 33,5 millj. kr. á yfirstandandi ári og var því fé öllu úthlutað núna. Umsóknarfrestur rann út 10. október sl. Sjóðnum bárust 167 styrkumsóknir og sótt var um ríflega 165 millj. kr. Umsóknarupphæð var að meðaltali nærri einni milljón króna.
Tónlistarstílar verkefna flokkast þannig:
- Umsóknir fyrir rokk, þungt og indie rokk voru 24 talsins eða um 14% umsókna, af þeim hlutu átta styrk, samtals að upphæð 3,3 millj. kr.
- Umsóknir fyrir popp, indie popp, dægurtónlist, raftónlist, þjóðlagatónlist, barnatónlist, hip-hop o.fl. voru 78 talsins eða tæplega helmingur umsókna. Af þeim hlutu 45 styrk að fjárhæð ríflega 18 millj. kr.
- Undir nútímatónlist, samtímatónlist, kóratónlist, sönglög o.fl. mætti flokka 31 umsókn eða 18% umsókna. Af þeim hlutu 18 styrki, samtals að fjárhæð um 6 millj. kr.
- Jazztónlist af ýmsum toga átti við um 19 umsóknir en af þeim hlutu 12 styrk að fjárhæð 5,5 millj. kr.
- Þrjár umsóknir bárust þar sem viðfangsefnið var illskilgreinanlegt og hlaut ein þeirra 200.000 kr. styrk.
Kynjahlutfall forsvarsmanna umsækjenda og svo þeirra sem hlutu á endanum styrki reyndist það sama, þ.e. 61% umsækjenda karlar og 31% umsækjenda konur og 8% blandaðir hópar.
Það var mat stjórnar að langflestar umsóknanna hafi verið vel unnar og verkefnin nær öll mjög verðug. Verkefni stjórnar var því afar erfitt og eftir sitja mörg góð og áhugaverð hljóðritunarverkefni sem ekki hljóta styrki að þessu sinni.
Úthlutun 2016
Aduria ehf | Elsku Borga mín | 400.000 |
Aðalbjörn Tryggvason | Ný plata Sólstafa | 250.000 |
Á móti sól/Heimir Eyvindsson | Ný lög | 200.000 |
Árni Grétar Jóhannesson | Jón Ólafsson & Futuregrapher – Tvö | 200.000 |
Árný Árnadóttir | If I Could | 400.000 |
Ása Elínardóttir | ÁSA | 100.000 |
Ásbjörg Jónsdóttir | Ný íslensk tónlist fyrir barnakóra | 300.000 |
Ásbjörn K. Morthens | 2 breiðskífur 2017 | 750.000 |
Áskell Másson | Líður að hausti | 500.000 |
Ásta Björg Björgvinsdóttir | Fyrsta breiðskífa Hinemoa | 200.000 |
Bangoura Band | Minister of Injustice | 400.000 |
Birgir Baldursson | Tusk (nýr hljómdiskur) | 200.000 |
Birgir Hilmarsson | Vinnsla breiðskífu (seinni hluti) | 500.000 |
Björn Stefán Þórarinsson | Mánar | 500.000 |
Björn Thoroddsen | Bjössi | 500.000 |
Daníel Friðrik Böðvarsson | Daníel Böðvarsson – sólóplata | 200.000 |
Elín Dröfn Jónsdóttir | Undirbúningur fyrir plötuútgáfu | 300.000 |
Elín Eyþórsdóttir | Elín Ey - íslensk plata | 400.000 |
Elísa María Geirsdóttir Newman | Elíza Newman ný plata | 200.000 |
Elísabet Eyþórsdóttir | Sísý Ey systur – Accoustic | 300.000 |
Elísabet Waage | John Speight – Þórunn Gréta Sigurðardóttir | 300.000 |
Félag íslenskra kvenna í tónlist(FÍKT) | Tónsmiðja KÍTÓN á Stykkishólmi 2017 | 500.000 |
Fireland Music slf. | Kjarma | 450.000 |
Flugur listafélag ehf. | Útgáfa á annari plötu hljómsveitarinnar Annes | 500.000 |
Gangly | Gangly - stuttskífa | 300.000 |
Grúska Babúska | Ísland - Glastonbury | 350.000 |
Guðrún Óskarsdóttir | In Paradisum | 200.000 |
Gunnsteinn Ólafsson | Ævintýraóperan Baldursbrá | 350.000 |
Hafdís Bjarnadóttir | Já – síðasta platan í trílógíunni „Nú jæja já“ | 500.000 |
Hafdís Huld Þrastardóttir | Fjórða plata Hafdísar Huldar á ensku | 650.000 |
Hafsteinn Þórólfsson | Once I dreamt in the dark | 300.000 |
Hallur Ingólfsson | Skepna 2 | 200.000 |
Helgi Björnsson | Heinsunareldurinn | 600.000 |
Herbert Þ. Guðmundsson | Upptaka á 12 nýjum íslenskum lögum | 300.000 |
Hildur Kristín Stefánsdóttir | Hildur – LP | 400.000 |
Högni Egilsson | ARMS | 600.000 |
Hörður Bragason | SMURJÓN | 250.000 |
Jakob Frímann Magnússon | Fata Morgana | 600.000 |
Jana María Guðmundsdóttir | Cloud Of Armour | 400.000 |
Jófríður Ákadóttir | JFDR – Divine | 250.000 |
Jóhann Guðmundur Jóhannsson | Lög við ljóð Laxness – geisladiskur | 500.000 |
Jón Ólafsson | Tveir fiskar | 500.000 |
JR-Music ehf. | Plata með Helenu Eyjólfsdóttur | 400.000 |
Kammerkór Norðurlands | Heimsósómi | 250.000 |
Kammerkór Suðurlands | Kom skapari | 250.000 |
Kammersveit Reykjavíkur | Upptaka á nýjum íslenskum verkum fyrir kammersveit | 300.000 |
Karólína Eiríksdóttir | Samstarf Karólínu og Ásgerðar | 300.000 |
Kristinn Thorarensen | Plata | 650.000 |
Lára Rúnarsdóttir | Lára Rúnars #6 | 650.000 |
Lúpus slf. | Reykjavík GPS – staðsetningatengt tónverk | 300.000 |
Magnús Ragnar Einarsson | Máðar myndir | 250.000 |
Michael Jón Clarke | 10 minningarbrot um Emil | 300.000 |
Óskar Guðjónsson | ADHD 7 – upptaka og útgáfa | 400.000 |
Pálmi J. Sigurhjartarson | Undir fossins djúpa nið | 300.000 |
Pálmi Ragnar Ásgeirsson | ROK by ROK | 300.000 |
Ragna Kjartansdóttir | Önnur plata Cell7 | 400.000 |
Record Records ehf. | Hljóðritun á aukaefni Júníusar Meyvants | 400.000 |
Rúnar H Vilbergsson | Ný íslensk verk fyrir túbu | 200.000 |
Sigurður Björn Blöndal | HAM – Söngvar um helvíti mannanna | 350.000 |
Sigurður Geirdal Ragnarsson | DIMMA – 5 | 750.000 |
Sigurður Hjörtur Flosason | Ný tónlist hljóðrituð í Svíþjóð | 400.000 |
Sindri Már Sigfússon | Sin Fang – Sad Party – breiðskífa | 500.000 |
SJS music slf. | Mixtura | 650.000 |
Snorri Helgason | Margt býr í þokunni | 300.000 |
Sóley Stefánsdóttir | sóley – þriðja breiðskífa | 1.000.000 |
Stefán Örn Gunnlaugsson | ÍKORNI 4 plata | 500.000 |
Steinunn Harðardóttir | Our Atlantis | 500.000 |
Stephan Stephensen | Les Aventures de President Bongo | 500.000 |
Svanur Davíð Vilbergsson | Ný íslensk gítartónlist | 400.000 |
Sváfnir Sigurðarson | Sváfnir Sig og drengirnir af upptökuheimilinu | 100.000 |
Sverrir Guðjónsson | RÖKKURSÖNGVAR | 200.000 |
Tackleberry sf. | Þriðja breiðskífa Moses Hightower | 450.000 |
Tara Sóley Mobee | Tara 1 | 250.000 |
Tómas Ragnar Einarsson | Bongó | 500.000 |
Töfrahurð sf. | Ný íslensk jazzútgáfan af Pétri og Úlfinum eftir Prokofiev fyrir börn | 500.000 |
Una Stefánsdóttir | EP plata | 200.000 |
Unnur Birna Björnsdóttir | Unnur Birna sólóplata | 250.000 |
Védís Hervör Árnadóttir | White Picket Fence | 750.000 |
Vilborg Ása Dýradóttir | Fjórða breiðskífa hljómsveitarinnar MAMMÚT | 500.000 |
Vilhelm Anton Jónsson | 200000 naglbitar ný plata | 500.000 |
Vök ehf. | Upptökur á Vök breiðskífu | 500.000 |
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson | Völuspá | 1.000.000 |
Þráinn Hjálmarsson | Viola d'amore – Marco Fusi | 100.000 |
Örvar Smárason | Light is Liquid | 400.000 |
33.500.000 |