Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr.. 54/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 54/2024

Fimmtudaginn 11. apríl 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. desember 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. september 2023 og var umsóknin samþykkt 13. september 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. desember 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt á boðað námskeið. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun eftir að kærandi sendi skýringar 11. janúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. febrúar 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 7. febrúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. mars 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. mars 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá hún vilji útskýra hvers vegna hún hafi ekki komist á námskeiðið sem hafi leitt til þess að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í tvo mánuði. Hún hafi verið að glíma við ógreinda þráhyggjuröskun sem hafi haft veruleg áhrif á daglegt líf hennar og hafi gert henni erfitt fyrir að mæta á námskeiðið. Hún hafi verið í slæmu húsnæði með slæma herbergisfélaga sem hafi valdið henni erfiðleikum auk áfalls sem hún hafi orðið fyrir. Hún sé að leita sér aðstoðar og óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 4. september 2023. Með erindi, dags. 13. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 22. nóvember 2023 hafi kærandi verið boðuð á námskeið hjá HH ráðgjöf sem hafi átt að halda í fjögur skipti, það fyrsta 28. nóvember 2023, kl. 10:00, og svo 1., 5. og 8. desember 2023.  Námskeiðið hafi verið haldið í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þá hafi verið veittar leiðbeiningar um hvernig bæri að skrá forföll og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send á uppgefið netfang kæranda, með smáskilaboðum í farsíma og með tilkynningu á „Mínum síðum“ þann 22. nóvember 2023, kl. 08:35. Áminning vegna námskeiðsins hafi verið send daginn fyrir fyrsta námskeiðsdag, eða 27. nóvember 2023, kl. 15:05. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll innan tilskilins frests. Þann 3. desember 2023 hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hún hafi greint frá því að hafa misst af fyrsta deginum og óskað eftir því að vera færð í „næsta hóp.“ Erindi kæranda hafi verið svarað þann 5. desember 2023 þar sem upplýst hafi verið að ekki væri hægt að flytja hana um hóp en mætingarskylda teldist fullnægjandi ef hún mætti þá þrjá daga sem eftir lifðu námskeiðsins.

Þann 11. desember 2023, kl. 09:51, hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík sem hafi átt að fara fram daginn eftir kl. 10:00. Henni hafi verið veittar sömu upplýsingar um skyldumætingu og nauðsyn þess að tilkynna um forföll án ástæðulausrar tafar. Þann sama dag hafi kærandi sent tölvupóst og greint frá því að vera mætt í Hafnarfjörð á námskeið en að enginn væri þar til að taka á móti henni. Þann 12. desember hafi verið skráð í samskiptasögu kl. 10:55 að kærandi hafi mætt of seint á kynningarfund og að honum hafi verið lokið þegar kærandi hafi komið. Þann sama dag hafi kærandi haft samband símleiðis og sagt að hún gæti ekki mætt á námskeið í Hafnarfirði þar sem hún búi í Reykjavík.

Með erindi, dags. 13. desember 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki sinnt mætingu á námskeið sem hún hafi verið boðuð á dagana 28. nóvember og 5. og 8. desember 2023. Kærandi hafi einungis mætt í eitt skiptið af fjórum. Áréttað hafi verið að ef hún hafi hafnað þátttöku í vinnumarksaðgerð án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Kærandi hafi haft samband við þjónustuver stofnunarinnar þann 13. desember þar sem hún hafi greint frá því að hún hefði ekki hug á að fara aftur á sambærilegt námskeið. Skriflegar skýringar kæranda hafi borist 17. desember 2023 þar sem hún hafi greint frá því að hafa ekki getað sinnt námskeiðinu vegna persónulegra ástæðna og að hún ætti í erfiðleikum með að nota almenningssamgöngur.

Þann 18. desember 2023, kl. 08:18, hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund að nýju á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík 19. desember, kl. 09:30. Boðunin hafi verið send með yfirskriftinni: „Athugið. síðasta boðun.“ Þann 19. desember hafi verið skráð í samskipti kl. 13:48 að kærandi hafi haft samband símleiðis og tilkynnt að hún hafi ekki getað mætt á boðuðum tíma og óskað eftir nýjum fundi. Með erindi, dags. 22. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði sökum þess að hún uppfyllti ekki mætingarskyldu á námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Þann 11. janúar 2024 hafi borist skýringar frá kæranda þar sem meðal annars segi að hún vilji tilkynna um forföll vegna slæmra húsnæðismála og að hún hafi ekki getað komist út úr herbergi sínu þessi „þrjú“ skipti sem námskeiðið hafi verið haldið. Hún búi í Reykjavík og langt sé að fara á námskeið í Hafnarfirði. Þann 6. febrúar 2024 hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Með erindi, dags. 6. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, dags. 22. desember 2023, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysisbóta sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kveðið á um skyldu atvinnuleitanda að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Að auki sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um, komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði viðkomandi til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið, dagana 28. nóvember, 5. og 8. desember 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á ,,Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar, þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og staðsetning. Kæranda hafi verið send umrædd boðun með nærri sex sólarhringa fyrirvara. Þá hafi kæranda jafnframt verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.  Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Óskað hafi verið skýringa á ástæðum þess að kærandi hafi ekki mætt á námskeiðið. Kærandi hafi gefið þær skýringar að hún gæti ekki sótt námskeiðið vegna fjarlægðar frá heimili og síðar sökum þess að hún hafi ekki getað farið út af heimili sínu.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi sent boðun á uppgefið netfang kæranda og símanúmer. Þá hafi henni jafnframt verið send tilkynning á „Mínum síðum“. Samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli Vinnumálastofnun upplýsa umsækjanda um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hefur tiltekið við hlutaðeigandi teljist upplýsingarnar eða boðin hafi borist með sannanlegum hætti samkvæmt lögunum. Þegar umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur hafi verið samþykkt, þann 13. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum áleiðis til hennar inn á „Mínum síðum“, með tölvupósti eða með smáskilaboðum. Skilaboð myndu einnig berast henni með bréfpósti hefði hún óskað eftir því. Boðun á námskeið hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Stofnuninni þyki rétt að árétta í þessu samhengi að samkvæmt 2. mgr. og 5. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna stofnuninni um upphaf og lok veikinda án ástæðulausrar tafar. Stofnuninni hafi aldrei borist tilkynning frá kæranda um veikindi eða aðstæður sem hafi geta haft áhrif á atvinnuleit hennar. Hvorki í tengslum við námskeið sem hún hafi ekki mætt á né síðar boðaðra kynningarfunda.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafi það verið mat Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar sem kærandi hafi síðar fært fram teljist heldur ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og hafi að mati stofnunarinnar ekki áhrif á niðurstöðu málsins. Með því að hafa ekki mætt á boðað námskeið, né boðað forföll sín, hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 58. og 59. gr. laganna.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 22. nóvember 2023 tilkynnt að hún væri boðuð á námskeið hjá HH ráðgjöf sem yrði haldið í fjögur skipti á tímabilinu 28. nóvember til 8. desember 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi var minnt á boðað námskeið þann 27. nóvember 2023.

Kærandi hvorki mætti á námskeiðið né boðaði forföll fyrir fram. Með erindi, dags. 3. desember 2023, tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun að hún hefði misst af fyrsta degi námskeiðsins og óskaði eftir því að vera færð í næsta hóp. Þeirri beiðni kæranda var synjað með erindi Vinnumálastofnunar 5. desember 2023 og var henni tilkynnt að mætingarskylda teldist fullnægjandi ef hún myndi mæta í þau þrjú skipti sem eftir væru af námskeiðinu. Fyrir liggur að kærandi gerði það ekki. Kærandi gaf þær skýringar hjá Vinnumálastofnun að hún hefði ekki getað mætt á námskeiðið vegna persónulegra ástæðna og slæmra húsnæðismála, auk þess sem hún ætti í erfiðleikum með að nota almenningssamgöngur.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem henni var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. desember 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum