Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Laugardalshöll frá 28. mars
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum embættis sýslumannsins í Reykjavík færist úr Skógarhlíð 6 yfir í Laugardalshöll frá og með mánudeginum 28. mars.
Opið verður alla daga frá kl. 10.00 -22.00. Á kjördag, 9. apríl, verður opið frá kl. 10.00-17.00.
Kosningasímar embættis sýslumannsins í Reykjavík í Laugardalshöll:
860-3380 og 860-3381.Neyðarsími kjörstjóra: 860-3382.