Hoppa yfir valmynd
3. desember 2018 Utanríkisráðuneytið

Fyrstu Rakarastofuráðstefnurnar haldnar í Afríku

Þátttakendur á Rakarastofuráðstefnunni í Lilongve. Ljósmynd: UN Women. - mynd

„Tími þöggunar er liðinn, nú þurfum við að beita okkur gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum. Konurnar sem verða fyrir ofbeldi eru eiginkonur okkar, systur, dætur og frænkur. Þess vegna þurfum við að standa saman og berjast gegn ofbeldinu,“ sagði Moses Chimphepo héraðsstjóri Mangochi í Malaví á Rakarastofuráðstefnu í síðustu viku.

Sendiráð Íslands, UN Women í Malaví og landsnefnd UN Women á Íslandi stóðu að tveimur Rakarastofuráðstefnum, þeim fyrstu í Afríku. Sú fyrri var haldin í Mangochi, samstarfshéraði Íslendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og sú síðari í höfuðborginni, Lilongve. Alls sóttu ráðstefnurnar um 140 manns, embættismenn, héraðs- og þorpshöfðingar, þingmenn og trúarleiðtogar.

„Ræða Moses Chimphepo var sérstaklega áhrifamikil en hann hvatti karlmenn og stráka í héraðinu sérstaklega til að beita sér í jafnréttismálum og tók sérstaklega fram að á sama tíma og ráðstefnan færi fram væri sextán daga átak um allan heim gegn kynbundnu ofbeldi. Héraðsstjórinn endaði ræðu sína á að þakka íslenskum stjórnvöldum sérstaklega fyrir stuðninginn undanfarin þrjátíu ár,“ segir Lilja Dóra Kolbeinsdóttir verkefnastjóri í sendiráði Íslands í Lilongve.

Ágústa Gísladóttir forstöðukona sendiráðsins í Malaví setti ráðstefnuna í Lilongve og undirstrikaði mikilvægi kvenna í stjórnmálum. Einnig lýsti hún því hvernig kvennabaráttan hafi eflst á Íslandi með kjöri frú Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta árið 1980.

Unnsteinn Manuel Stefánsson, verndari UN Women á Íslandi, tók  þátt í ráðstefnunni, og sýndi brot úr sjónvarpsþætti sínum Hæpið sem fjallar um hlut karla og stráka í baráttunni fyrir kynjajafnrétti við góðar undirtektir viðstaddra. Starfskonur landsnefndar UN Women á Íslandi, Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra og Marta Goðadóttir kynningar- herferðarstýra þjálfuðu umræðustjóra fyrir umræðuhópana. Fyrrverandi nemar Jafnréttisskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi voru meðal umræðustjóra.

Þátttakendur beggja Rakarastofuviðburðanna (Barbershop) tóku virkan þátt í umræðum og karlmenn sem sóttu ráðstefnuna skuldbundu sig til að beita sér fyrir kynjajafnrétti.

Frá því að fyrsta Barbershop-ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í janúar 2015 hafa hátt í 2500 manns tekið þátt í Rakarastofuviðburðum á vegum utanríkisráðuneytisins, þar af ríflega helmingur karlar. Slíkir viðburðir hafa meðal annars farið fram á vettvangi alþjóðastofnana, á Alþingi og meðal starfsmanna í utanríkisráðuneytinu. Fyrirhugað er að halda slíkan viðburð hjá Alþjóðabankanum á næsta ári.

Verkfærakistu verkefnisins má nálgast hér

  • $alt
  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta