Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 177/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 177/2022

Fimmtudaginn 7. júlí 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. mars 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. desember 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 29. júlí 2020 og var umsóknin samþykkt 31. ágúst 2020. Þann 23. nóvember 2021 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 12. desember 2021 bárust Vinnumálastofnun þær upplýsingar frá fyrirtækinu að kærandi hefði hafnað starfinu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 15. desember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá umræddu fyrirtæki. Skýringar bárust ekki frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. desember 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Skýringar bárust frá kæranda 28. desember 2021. Þann 30. desember 2021 fjallaði Vinnumálastofnun um fyrri viðurlagaákvörðun í máli kæranda með tilliti til nýrra gagna í tengslum við kæru í máli úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 595/2021. Fyrri ákvörðun um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá C var felld úr gildi. Því breyttist ákvörðun Vinnumálastofnunar vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B úr þriggja mánaða biðtíma í tveggja mánaða biðtíma frá 20. desember 2021. Sú ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. desember 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. mars 2022. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. apríl 2022, var óskað eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð þann 23. maí og 13. júní 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 20. júní 2022, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi misst vinnu sína vegna Covid-19. Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi stöðvað greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar vegna höfnunar á atvinnutilboði. Kærandi fái eingöngu atvinnutilboð í matvælageiranum. Kærandi hafi tekið það fram að hún geti ekki unnið í þeim geira. Hún yrði lélegur starfsmaður og yrði rekin eftir aðeins nokkra daga. Kærandi tekur fram að hún mæti í hvert atvinnuviðtal sem henni sé boðið. Þá segir kærandi að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar séu mismunandi í hverjum mánuði. Kærandi óski eftir því að úrskurðarnefndin biðji Vinnumálastofnun að endurgreiða kæranda atvinnuleysisbætur og útskýra af hverju greiðslur til hennar séu mismunandi í hverjum mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 29. júlí 2020. Með erindi, dags. 31. ágúst 2020, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar um greiðslur atvinnuleysistrygginga hefði verið samþykkt og bótaréttur hennar væri 100%. Þann 21. september 2021 hafi kæranda verið gert að sæta tveggja mánaða biðtíma á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 11. nóvember 2021.

Þann 23. nóvember 2021 hafi ferilskrá kæranda verið send á atvinnurekanda, B. Yfirskrift starfsins hafi verið uppvask og akstur. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 12. desember 2021 þar sem fram hafi komið að kærandi hefði hafnað starfinu. Samkvæmt nánari skýringum atvinnurekanda hafi kærandi mætt í viðtal. Kærandi hafi ætlað að gefa svör síðar en ekkert hafi heyrst frá henni. Með erindi, dags. 15. desember 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B þann 12. desember 2021. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að höfnun á atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti valdið biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga eða missi bótaréttar með vísan til 57. og 67. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með erindi þann 16. desember 2021 hafi umsögn vegna kæru í máli nr. 595/2021 verið send til úrskurðarnefndar velferðarmála þar sem tilkynnt hafi verið að það væri mat stofnunarinnar, með tilliti til nýrra gagna, að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í málinu og að fyrri ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði kæmi til með að verða afturkölluð. Þann 21. desember 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um höfnun kæranda á atvinnutilboði hjá B. Fyrir hendi hafi verið upplýsingar frá þjónustuskrifstofu stofnunarinnar en skýringar kæranda hafi ekki legið fyrir. Kærandi hafi þá verið upplýst um að þar sem hún hefði hafnað starfi væru greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar stöðvaðar. Þar sem um væri að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni á sama bótatímabili hafi greiðslur til hennar verið felldar niður í þrjá mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 28. desember 2021 þar sem hún hafi ítrekað að hún væri ekki að leita eftir starfi við mat svo sem á kaffihúsum, eldhúsum og veitingastöðum. Hún hafi margoft upplýst stofnunina um það en ekki hafi verið brugðist við skýringum hennar. B sé vissulega veitingahús en hún geti ekki snert mat og skítuga diska. Kærandi sé með ofnæmi og með fælni fyrir mat og því yrði hún slæmur starfsmaður og yrði rekin eftir nokkra daga. Kærandi teldi að stofnunin tæki ekki tillit til persónulegra aðstæðna hennar.

Þann 30. desember 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um fyrri viðurlagaákvörðun í máli kæranda með tilliti til nýrra gagna í tengslum við kæru í máli úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 595/2021. Fyrri ákvörðun um tveggja mánaða niðurfellingu bótaréttar vegna C hafi verið felld úr gildi. Því hafi ákvörðun vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B breyst úr þriggja mánaða biðtíma í tveggja mánaða biðtíma frá 20. desember 2021.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir leiti sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. mgr. 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Sá sem láti hjá líða að veita upplýsingar eða að tilkynna um breytingar á högum sínum skuli ekki eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar [skv. 14. gr.] 2) eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, [sbr. þó 4. mgr.] 3) [og 59. gr. a]. 4) Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … 2) látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun sé enn fremur heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða sé í boði starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið boðið í atvinnuviðtal hjá B. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun á atvinnu[tilboði] til Vinnumálastofnunar og í kæru til nefndarinnar. Skýringar lúti einkum að því að hún geti ekki unnið með mat svo sem á kaffihúsum, eldhúsum eða veitingahúsum þar sem hún geti ekki snert mat og skítuga diska vegna ofnæmis og fælni fyrir mat og yrði hún því lélegur starfsmaður. Þá sé það mat kæranda að ekki sé tekið tillit til persónulegra aðstæðna hennar en hún hafi margsinnis komið því á framfæri að hún geti ekki sinnt slíkum störfum.

Vert sé að taka fram að þegar kæranda hafi verið boðið umrætt starf hafi skráð óskastörf kæranda meðal annars verið þjónn, veitingaþjónn, kaffibarþjónn, barþjónn, framleiðslumaður, gestamóttökustjóri, aðstoðarmaður á kaffistofu, mötuneyti eða eldhúsi, sölumaður og afgreiðslumaður í verslun eða bakaríum. Atvinnuleitendur á atvinnuleysisskrá séu með reglubundnum hætti hvattir til að uppfæra óskastörf sín á „Mínum síðum“ og geti atvinnuleitendur öllum stundum bætt við eða breytt upplýsingum. Það hafi kærandi ekki gert. Það sé á ábyrgð atvinnuleitanda að upplýsingar, svo sem skráning um óskastörf, sé rétt og að þær upplýsingar liggi fyrir þegar miðlað sé í störf hjá stofnuninni. Þá hafi kærandi ekki skilað læknisvottorði sérfræðilæknis sem sýni að viðkomandi hafi slíkt ofnæmi sem gæti haft áhrif á getu viðkomandi til að gegna ákveðnum störfum og kærandi hafi ekki gefið aðrar upplýsingar til stofnunarinnar en að hún sé almennt vinnufær.

Í ljósi ofangreinds séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði en atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað störfum á þeim forsendum að viðkomandi sé með fælni. Ákvæði 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 geri ekki ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum vegna fælni fyrir matvælum. Þá samræmast slíkar skýringar ekki skilyrðum 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um virka atvinnuleit atvinnuleitanda. Út frá fyrirliggjandi gögnum sé ekki fallist á að kærandi hafi verið reiðubúin að taka því starfi sem henni hafi boðist, án sérstaks fyrirvara.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda fyrir því að hafna starfi geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Með kæru til nefndarinnar óski kærandi eftir skýringum Vinnumálastofnunar á mismunandi upphæðum greiðslna atvinnuleysisbóta á milli mánaða. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum stafi mismunur greiðslna einkum af desemberuppbót, auk niðurfellingar bótaréttar vegna viðurlaga í samræmi við ákvarðanir stofnunarinnar.

Með vísan til alls ofangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á starfi geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins hafnaði kærandi starfi hjá B. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún sé ekki að leita eftir starfi með mat, til dæmis á kaffihúsi, í eldhúsi eða á veitingastöðum. Kærandi geti ekki snert mat eða skítuga matardiska. Hún sé með ofnæmi og fælni fyrir mat. Hún yrði lélegur starfsmaður og vilji ekki valda vinnuveitanda sínum vonbrigðum. Hún yrði rekin eftir nokkra daga í slíkri vinnu. Kærandi segir Vinnumálastofnun ekki taka tillit til persónulegra aðstæðna hennar. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti því að hafna umræddu starfi, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

Úrskurðarnefndin telur ástæðu til að átelja þann mikla drátt sem varð hjá Vinnumálastofnun á því að skila greinargerð og gögnum til nefndarinnar. Samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin kveða upp úrskurði svo fljótt sem kostur er og að jafnaði innan þriggja mánaða eftir að henni berst mál, nema sérstakar ástæður hamli. Forsenda þess að úrskurðarnefndin geti fylgt þeirri reglu er að fullnægjandi gögn liggi fyrir tímanlega en ljóst er að svo var ekki í máli þessu. Úrskurðarnefndin brýnir fyrir Vinnumálastofnun að virða framvegis þau tímamörk sem sett eru vegna kærumála hjá nefndinni.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. desember 2021, um að fella niður rétt A til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta