Hoppa yfir valmynd
15. október 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktaðs grænmetis á yfirstandandi ári á Afurð Greiðslukerfi landbúnaðarins afurd.is.

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 26. október n.k.

 

Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við garðyrkju nr. 630/2020 geta sótt um jarðræktarstyrk í garðyrkju. Skilyrði og forsenda fyrir veitingu stuðnings eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í Jörð.

Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda ha sem sótt er um. Ekki er greitt framlag fyrir ræktun undir einum hektara.

Fjöldi ha sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:

Fjöldi ha sem sótt er um

Stuðull umsóttra ha

1-30 ha

1,0 fyrir rótarafurðir

1-30 ha

4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

> 30 ha

0,7 fyrir rótararfurðir

> 30 ha

3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

 Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri greiðslur samtals en 10% af því fjármagni sem til ráð­stöfunar er árlega.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta