Ráðherrar ræða öryggi og vellíðan í skólum á tímum COVID-19
„Öryggi og velferð nemenda og starfsfólks í skólum er lykilmarkmið okkar og á fundinum fann ég sterkan samhljóm í málflutningi Ítalíu og Danmerkur. Við deilum áskorunum á ýmsum sviðum en búum að því hér að vel tókst til að halda uppi virku skólastarfi í vor. Íslenska skólasamfélagið hefur nálgast þessa flóknu áskorun af ábyrgð og sveigjanleika og fyrir það erum við þakklát og stolt. Verkefnið heldur áfram en við getum lært af öðrum og miðlað okkar þekkingu. Á þessum tímapunkti er það virkilega dýrmætt og ég er bjartsýn á að við finnum árangursríkustu leiðirnar til þess að stuðla að virku og öflugu skólastarfi í vetur,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Meðal þess sem rætt var á fundinum voru málefni viðkvæmra hópa í skólakerfinu, samspil fjarnáms og blandaðs náms og mótvægisaðgerðir.