Hoppa yfir valmynd
27. mars 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menningarráðherra skipar Lovísu Ósk Gunnarsdóttur í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. - mynd

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skipað Lovísu Ósk Gunnarsdóttur í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins frá og með 1. ágúst næstkomandi. Embættið var auglýst laust til umsóknar 3. desember sl. Alls bárust 8 umsóknir um starfið.

Lovísa Ósk stundaði undirbúningsnám í dansi við Balletakademian í Stokkhólmi í Svíþjóð og lauk atvinnudansaranámi þaðan árið 2002. Lovísa lauk meistaranámi í sviðslistum (MFA) við Listaháskóla Íslands árið 2020 og árið 2022 lauk hún MPM gráðu í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Lovísa starfaði um árabil sem dansari í Íslenska dansflokknum en hefur auk þess verið sjálfstætt starfandi danshöfundur, dansari og listrænn stjórnandi um árabil og hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir dansverk sín og túlkun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta