Embætti sýslumannsins á Hólmavík er laust til umsóknar.
Embætti sýslumanns á Hólmavík
Embætti sýslumannsins á Hólmavík, sem dómsmálaráðherra veitir, er laust til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 15. mars 2002.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Arnarhvoli, eigi síðar en 4. mars 2002.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar.
Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8. febrúar 2002.