Embætti sýslumanns á Ísafirði og á Blönduósi
Embætti sýslumanns á Ísafirði og á Blönduósi
Embætti sýslumannsins á Ísafirði og á Blönduósi, sem dómsmálaráðherra veitir, eru laus til umsóknar.
Stöðurnar verða veittar frá 15. febrúar 2002.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Arnarhvoli, eigi síðar en 23. janúar 2002.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar.
Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 27. desember 2001.