Norðurslóðaráðstefna í Yakutsk
Ráðstefnan Northern Sustainable Development Forum um sjálfbærni á norðurslóðum var haldin í Yakutsk í lok september. Er þetta í annað sinn sem hún er haldin og komu þátttakendur úr röðum vísindafólks, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka frá Norðurskautsríkjunum. Í ljósi aðstæðna fór ráðstefnan að mestu leyti fram á netinu.
Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður og formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar og norðurskautsmál, kynnti meginþætti norðurslóðastefnu Íslands sem snúa að sjálfbærri þróun, loftslags- og umhverfismálum og fólki búsettu á norðurslóðum. Hann greindi frá lagaumhverfinu á Íslandi fyrir norðurslóðamál og samspili Alþingis og sveitarstjórna hvernig þessir þættir eru framkvæmdir á Íslandi til að tryggja se, bestu lífsskilyrði fólks á svæðinu samhliða því að vernda náttúruna.
Þá flutti Magnus de Witt, doktorsnemi við Rannsóknarsetur um sjálfbæra þróun við Háskólann í Reykjavík, erindi um orkuþróun á norðurslóðum í umræðu tileinkaðri hlutverki háskóla á norðurslóðum við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun.