Upplýsingar um skráningu á kjörskrá
Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum laugardaginn 30. júní næstkomandi. Með því að slá inn kennitölu kjósanda kemur upp nafn hans, lögheimili og sveitarfélag. Reykvíkingar og íbúar nokkurra stærri sveitarfélaga í landinu fá einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna og sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli þeirra. Enginn getur neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 9. júní 2012 og fæddir eru 30. júní 1994 og fyrr. Ennfremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.