Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar
Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar: 23. apríl 1995 - 28. maí 1999.
- Davíð Oddson, forsætisráðherra og ráðherra Hagstofu Íslands, (frá 11.05 til 28.05.1999) dóms- og kirkjumálaráðherra og sjávarútvegsráðherra
- Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, (frá 11.05. til 28. 05.1999) landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra
- Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
- Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra
- Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra (til 16.04.1998)
- Geir H. Haarde fjármálaráðherra (frá 16.04.1998)
- Guðmundur Bjarnason, umhverfisráðherra og landbúnaðarráðherra (til 11.05.1999)
- Halldór Blöndal, samgönguráðherra
- Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra
- Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
- Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra og sjávarútvegsráðherra (til 11.05.1999)
Fyrsti fundur ríkisráðs með nýjum forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni. Talið frá vinstri: Páll Pétursson, Halldór Blöndal, Friðrik Sophusson, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjarnason, Ólafur Davíðsson ríkisráðsritari, Ingibjörg Pálmadóttir og Þorsteinn Pálsson.
Með breytingum 16. apríl 1998. Talið frá vinstri: Páll Pétursson, Halldór Blöndal, Geir H. Haarde, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjarnason, Ingibjörg Pálmadóttir, Þorsteinn Pálsson og Ólafur Davíðsson ríkisráðsritari.
Með breytingum 11. maí 1999. Talið frá vinstri: Ingibjörg Pálmadóttir, Geir H. Haarde, Björn Bjarnason, Davíð Oddson, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Halldór Blöndal, Ólafur Davíðsson ríkisráðsritari og Páll Pétursson.