Hoppa yfir valmynd
18. september 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 319/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 319/2024

Miðvikudaginn 18. september 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 15. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. júlí 2024 þar sem umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árunum 2021 til 2023. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 1.531.376 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi sendi Tryggingastofnun ríkisins skilaboð á Mínum síðum stofnunarinnar þann 30. maí 2024 þar sem hún óskaði eftir niðurfellingu framangreindrar kröfu. Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2024, var umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiddra bóta synjað á þeim forsendum að krafan væri réttmæt og að skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður væru ekki fyrir hendi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. júlí 2024. Með bréfi, dags. 17. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 1. ágúst 2024, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er vísað í ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2024, um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiddra bóta.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé synjun á umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, dags. 15. júlí 2024. Ofgreiðslukrafan hafi myndast vegna endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2023.

Fyrir gildistöku breytingarlaga nr. 18/2023 hafi komið fram í 7. gr. laga um félagslega aðstoð nr. 99/2007 að um endurhæfingarlífeyri hafi gilt ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. þágildandi laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Auk þess hafi sagt að um aðrar tengdar bætur færi eftir sömu reglum og gildi um örorkulífeyri, sbr. þó 1. mgr. 10. gr. þágildandi laga.

Eftir gildistöku breytingarlaganna 12. apríl 2023 segi í 7. gr. laga um félagslega aðstoð að fjárhæð endurhæfingarlífeyris skuli lækka um 9% af eigin tekjum lífeyrisþega, sbr. 30. gr. laga um almannatryggingar, uns greiðslur falli niður. Um ákvörðun réttindahlutfalls segi að fari samkvæmt 24. gr. laga um almannatryggingar og að um aðrar tengdar bætur fari eftir sömu reglum og gildi um örorkulífeyri, sbr. þó 1. mgr. 10. gr. þessara laga.

Um útreikning örorkulífeyris hafi verið fjallað í III. kafla þágildandi laga um almannatryggingar en í IV. kafla núgildandi laga. Í 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi verið kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun skyldi standa að útreikningi bóta. Sambærileg ákvæði sé finna í 30. og 33. gr. núgildandi laga.

Samkvæmt 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi Tryggingastofnun borið að líta til tekna við útreikning bóta, meðal annars endurhæfingarlífeyris. Í 2. mgr. hafi sagt að til tekna samkvæmt III. kafla laganna teldust tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teldist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum, sbr. 30. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Þar á meðal séu fjármagnstekjur á borð við vexti og verðbætur og söluhagnað.

Samkvæmt 5. mgr. 18. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi örorkulífeyrir lækkað um tiltekið hlutfall af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn félli niður. Sama hafi gilt um aldurstengda örorkuuppbót og tekjutryggingu, sbr. 1. mgr. 21. gr. og 3. mgr. 22. gr. þágildandi laga.

Í 5. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi sagt að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skyldi leggja 1/12 af áætluðum tekjum greiðsluþegans á bótagreiðsluárinu. Þá hafi sagt að áætlun um tekjuupplýsingar skyldi byggjast meðal annars á nýjustu upplýsingum frá greiðsluþega, sbr. 39. gr. laganna þar sem sagt hafi að greiðsluþega væri skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem gætu haft áhrif á bætur eða greiðslur. Sambærilegt ákvæði sé að finna í 33. gr. núgildandi laga.

Í 6. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna, sbr. 33. gr. núgildandi laga. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009.

Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar hafi farið um það samkvæmt 55. gr. þágildandi laga um almannatryggingar, sbr. 34. gr. núgildandi laga. Í ákvæðunum sé Tryggingastofnun skylduð til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Þar segi:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Kærandi hafi þegið endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun samfleytt frá 1. ágúst 2021.

Kærandi hafi fengið samþykkt framlengingu á endurhæfingartímabili með bréfi, dags. 30. janúar 2023. Sama dag hafi Tryggingastofnun uppfært tekjuáætlun kæranda á grundvelli upplýsinga frá Skattinum, fyrirliggjandi tekjuáætlunar og almennra verðlagsbreytinga. Áætlað hafi verið að kærandi kæmi til með að hafa 3.000.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 18.300 kr. í fjármagnstekjur á árinu 2023. Kærandi hafi þá þegið endurhæfingarlífeyri í rúmlega ár og hafi margoft verið upplýst um að það væri á hennar ábyrgð að upplýsingar á tekjuáætlun væru réttar og að mikilvægt væri að upplýsa stofnunina um allar breytingar á tekjum yfir árið. Vegna misræmis milli tekjuáætlunar og staðgreiðsluskrár Skattsins hafi Tryggingastofnun 10. júlí 2023 uppfært tekjuáætlun kæranda. Í bréfi Tryggingastofnunar, dags. 12. júlí 2023, hafi komið fram að áætlað væri að kærandi hefði 3.640.770 kr. í lífeyrissjóðsgreiðslur. Kærandi hafi uppfært tekjuáætlunina 2. ágúst 2023, þar sem hún hafi áætlað, auk áðurnefndra tekna, 6.148.961 kr. í aðrar tekjur. Þetta hafi verið síðasta breytingin sem gerð hafi verið á tekjuáætlun kæranda á árinu 2023.

Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur kæranda á árinu 2023 hafi legið fyrir hafi komið í ljós að tekjur kæranda hefðu verið 3.437.378 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 6.148.961 kr. í aðrar tekjur og 687.172 kr. í formi vaxta af innistæðum. Tekjur kæranda hafi því verið vanáætlaðar á áðurnefndri tekjuáætlun og hafi kærandi því fengið ofgreiddar bætur að fjárhæð 1.531.376 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 28. maí 2024.

Kæranda hafi verið veittur frestur til 9. ágúst 2024 til að andmæla endurreikningnum og hafi henni verið tilkynnt að ef engin andmæli bærust teldist uppgjöri ársins 2023 lokið og að innheimta 1.531.376 kr. myndi hefjast 1. september 2024.

Kærandi hafi sótt um niðurfellingu ofgreiðslukröfu með umsókn, dags. 6. júní 2024. Með bréfi dags. 15. júlí 2024, hafi umsókn kæranda verið synjað. Þann 15. júlí 2024 hafi ákvörðunin verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Kærandi hafi þegið endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun samfleytt frá 1. ágúst 2021.

Í 2. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi komið fram að til tekna samkvæmt III. kafla laganna teldust tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teldist til tekna og tiltekinna frádráttarliða í 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga eða takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum, sbr. 30. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Í þessu ákvæði hafi og sé því tilgreint við hvaða tekjur Tryggingastofnun skuli miða útreikning og endurreikning bóta og jafnframt hafi verið tilgreindar þær undantekningar sem stofnuninni hafi borið að hafa hliðsjón af við þá framkvæmd. Skaðabætur og vátryggingafé vegna sjúkdóms, slysa, atvinnutaps eða launamissis og hvers konar aðrar skaðabætur og vátryggingabætur séu þar tilgreindar sem skattskyldar og þar með teljist þær til tekna samkvæmt lögum um almannatryggingar. Í 28. gr. tekjuskattslaga sé fjallað um hvað teljist ekki til tekna. Í 2. tölul. segi að eignaauki sem verði vegna greiðslu líftryggingarfjár, vátryggingabóta vegna sjúkdómatrygginga, dánarbóta, miskabóta og bóta fyrir varanlega örorku, enda séu bætur þessar ákveðnar í einu lagi til greiðslu, teljist ekki til tekna.

Í skilaboðum frá kæranda á Mínum síðum til Tryggingastofnunar þann 30. maí 2024 segi að um hafi verið að ræða „skaða og miskabætur“ sem hafi samsvarað árstekjum sem hún hefði átt að fá ef hún hefði ekki lent í bílslysi.

Til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar hafi verið lagðar 1/12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins í samræmi við 5. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar og 33. gr. núgildandi laga. Tekjurnar hafi verið áætlaðar á grundvelli upplýsinga um tekjur kæranda á fyrri árum eða áætlana frá kæranda sjálfum. Tryggingastofnun hafi upplýst kæranda um forsendur bótaútreikningsins, minnt á skyldu til að tilkynna stofnunni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem gætu haft áhrif á greiðslur til og hafi gefið henni kost á að koma að athugasemdum. Auk þess hafi kærandi verið upplýst um afleiðingar þess að tekjur væru vanáætlaðar á tekjuáætlun.

Eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur greiðsluársins hafi legið fyrir við álagningu skattyfirvalda sé Tryggingastofnun skylt að endurreikna fjárhæðir greiðslna á grundvelli endanlegra upplýsinga um tekjur greiðsluþega á árinu sem liggi þá fyrir, sbr. 6. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar og 33. gr. núgildandi laga. Hafi Tryggingastofnun ofgreitt bætur til greiðsluþega sé stofnuninni einnig skylt að endurkrefja það sem ofgreitt hafi verið í samræmi við 55. gr. þágildandi laga og 34. núgildandi laga. Meginreglan hafi verið sú að ef tekjur þær sem lagðar hafi verið til grundvallar endurreikningi hafi reynst hærri en tekjuáætlun hefði gert ráð fyrir og ofgreiðsla hafi stafað af því að bótaþegi hafi ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukninguna eða aðrar breyttar aðstæður þá skyldi sú ofgreiðsla endurkrafin. Skipti þá ekki máli hvort greiðsluþegi hafi getað séð fyrir þessa tekjuaukningu eða breyttar aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum hafi tekjur kæranda verið vanáætlaðar á tekjuáætlun fyrir árið 2023 sem og í upphafi árs 2024. Sú vanáætlun hafi leitt til 1.531.376 kr., ofgreiðslu að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.

Í 55. gr. þágildandi laga um almannatryggingar og 34. gr. núgildandi laga sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðin séu ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Stofnunin sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd velferðarmála og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við.

Umdeild krafa hafi orðið til við endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2023. Krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs. Eins og gögn málsins beri með sér sé ljóst að ástæða ofgreiðslunnar hafi verið röng tekjuáætlun. Lífeyrisþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta henni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. þágildandi laga og 47. gr. núgildandi laga. Kæranda hafi mátt vera ljóst að vanáætlaðar tekjur hefðu áhrif á rétt hennar til lífeyrisgreiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Þrátt fyrir það telji Tryggingastofnun ekki útilokað að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Það leiði eitt og sér aftur á móti ekki sjálfkrafa til þess að krafan sé felld niður heldur þurfi að meta aðstæður kæranda heildstætt með hliðsjón af öllum þeim atriðum sem tilgreind séu í 11. gr. reglugerðarinnar.

Samráðsnefnd Tryggingastofnunar hafi einnig litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna kæranda í samræmi við 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 á grundvelli upplýsinga sem stofnunin hafi aðgang að og meðal annars hafi verið horft til eignastöðu kæranda og tekna. Hvað varði fjárhagslegar aðstæður hafi meðaltekjur kæranda árið 2021 verið samkvæmt skattframtali 422.938 kr. á mánuði. Árið 2022 hafi meðaltekjur kæranda á mánuði verið 578.373 kr. samkvæmt skattframtali. Árið 2023 hafi meðaltekjur kæranda samkvæmt skattframtali verið 983.222 kr. á mánuði. Hluti þessara tekna hafi komið til vegna eingreiðslu að fjárhæð 6.148.961 kr. sem kærandi hafi fengið frá Sjóvá í júlí 2023. Á skattframtali séu þessar tekjur skráðar í tekjulið 96 sem óskilgreindar en skattskyldar tekjur. Þá verði ráðið af gögnum málsins að þrátt fyrir að eignastaða kæranda hafi ekki verið umfram skuldir í lok árs 2023 þá hafi hún átt eign í innlendum bönkum eða sparisjóðum í formi innistæðna, verðbréfa eða hlutabréfa að fjárhæð 19.037.453 kr. í lok ársins. Samkvæmt þessum upplýsingum hafi Tryggingastofnun talið að fjárhagslegar aðstæður kæranda væru slíkar að geta kæranda til endurgreiðslu væri til staðar. Einnig hafi verið horft til þess hvernig krafan hafi verið tilkomin. Félagslegar aðstæður kæranda hafi ekki verið taldar takmarka getu kæranda til endurgreiðslu þannig að um alveg sérstakar aðstæður væru að ræða.

Tryggingastofnun hafi talið rétt að koma til móts við kæranda með því að dreifa eftirstöðvum kröfunnar á 60 mánuði frá 1. ágúst 2024 svo mánaðarleg greiðslubyrði væri sem minnst, en að jafnaði sé gert ráð fyrir að kröfur séu greiddar upp á 12 mánuðum, sbr. 3. mgr. 34. gr. laga um almannatryggingar. Endurgreiðslan verði þar að auki vaxtalaus ef kærandi standi við greiðsluskyldu sína samkvæmt samningi um greiðsludreifingu, sbr. 3. mgr. 34. gr. laga um almannatryggingar. Þegar þetta sé skrifað standi krafan í 1.505.853 kr. og greiði kærandi 25.523 kr. á mánuði af kröfunni. Í heildina greiði kærandi 32.592 kr. á mánuði vegna ofgreiðslukrafna. Með hliðsjón af framangreindu hafi Tryggingastofnun talið að geta kæranda til endurgreiðslu eftirstöðva krafna hafi verið hendi. Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um sérstakar aðstæður.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta sem og innheimtu ofgreiddra bóta. Tryggingastofnun fari því fram á að kærð ákvörðun verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2024, á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta ársins 2023.

Samkvæmt 1. mgr. 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 48. gr. laga um almannatryggingar.

Í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð kemur fram að fjárhæð endurhæfingarlífeyris skuli lækka um 9% af eigin tekjum lífeyrisþega, sbr. 30. gr. laga um almannatryggingar, uns greiðslur falla niður. Í 30. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 3. mgr. 33. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni.

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá 1. ágúst 2021 til 31. desember 2023. Tryggingastofnun tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2023 með bréfi, dags. 28. maí 2024. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hennar hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 1.531.376 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til þess að lífeyrisjóðsgreiðslur og greiðslur frá tryggingafélagi voru ekki í samræmi við tekjuáætlun ársins.

Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni ber að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 34. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hún tók við hinum ofgreiddu bótum.

Í máli þessu lýtur ágreiningurinn að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfum sem hafði myndast vegna ofgreiddra bóta ársins 2023.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að tekjutengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 1. mgr. 47. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins má rekja ofgreiðslukröfu til vanáætlaðra lífeyrissjóðtekna og greiðslna frá tryggingafélagi. Því er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Í beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu kemur fram að ástæða beiðninnar sé sú að kærandi hafi fengið greiddar skaða- og miskabætur vegna slyss sem hún hafi lent í, bæturnar hafi numið um sex milljónum króna og af þeim hafi verið greiddir um tvær milljónir í skatt. Þá vísar kærandi til þess að hún sé einstæð, án baklands og sé nýkomin með greininguna vefjagigt. Meðaltekjur kæranda á árinu 2023 voru samkvæmt staðgreiðsluskrá 834.092 kr. á mánuði og fyrstu sjö mánuði ársins 2024 voru meðaltekjur kæranda samkvæmt staðgreiðsluskrá 550.111 kr. Þá verður ráðið af gögnum málsins að eignastaða kæranda hafi verið lítillega neikvæð á árinu 2023. Jafnframt lítur úrskurðarnefndin til þess að Tryggingastofnun hefur dreift eftirstöðvum kröfunnar á 60 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á 12 mánuðum, eins og meginregla 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar kveður á um, þannig að mánaðarleg greiðslubyrði af kröfunni nemur 25.253 kr., auk þess sem að mánaðarleg greiðslubyrði vegna eldri krafna er einungis 7.069 kr. Með hliðsjón af þessu telur úrskurðarnefndin að geta til endurgreiðslu sé fyrir hendi. Einnig lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 1. mgr. 34. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarsjónarmiðum.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. júlí 2024 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta