Hoppa yfir valmynd
16. júní 2020 Utanríkisráðuneytið

Ísland styður mæðra- og ungbarnavernd í Síerra Leone á tímum COVID-19

Vegna nýrra áskorana sem fylgja COVID-19 hefur Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í Síerra Leone, með stuðningi frá Íslandi, sett á laggirnar sérstakt verkefni í þágu nýbakaðara mæðra. Verkefnið felst í því að færa þeim sérstakan „mæðrapoka“ með ýmsum nauðsynlegum vörum fyrir þær og börnin, ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum um kórónaveiruna og varnir gegn henni.

„Þetta verkefni er gott dæmi um að breyttar aðstæðum á tímum COVID-19 sem kalla á breyttar áherslur í þróunarsamvinnu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. „Verkefnið snýr að því að aðstoða mæður eftir fæðingu við að verja sig og ungbörn sín gegn farsóttinni og um leið að hvetja verðandi mæður að nýta sér fæðingarþjónustu og mæðra- og ungbarnavernd í landi sem hefur einhverja hæstu dánartíðni mæðra í heiminum,“ segir hann.

Ein af hverjum sautján konum deyr af barnsförum í Síerra Leone samkvæmt gögnum frá Sameinuðu þjóðunum. Af hverjum hundrað þúsund börnum sem fæðast deyja 1,165 mæður.

„Við hjá UNFPA í Síerra Leone erum afar þakklát stjórnvöldum á Íslandi og íslenska utanríkisráðuneytinu sem brugðust skjótt við ósk okkar um stuðning við að breyta áherslum í verkefnum okkar vegna nýrra áskorana á tímum kórónaveirunnar. Þessir fallegu „mæðrapokar“ koma örugglega til með að laða konur að heilsugæslustöðum til að fæða,“ segir Kim Eva Dickson læknir hjá UNFPA.

Meðal þess sem er að finna í „mæðrapokunum“ eru sápur, handklæði, nærföt, andlitsgrímur, dömubindi, þurrkur og bleyjur.

Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er ein fjögurra áherslustofnana Íslands í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu. Ísland hefur síðustu árin unnið með UNFPA í Síerra Leone að forvörnum og lækningu við fæðingarfistli.

  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta