Drög að reglugerð um starfsemi slökkviliða í kynningu
Um er að ræða nýja reglugerð sem kveður á um lágmarkskröfur um tækjakost, húsnæði og mannafla slökkviliða, sem og um vatnsöflun til slökkvistarfa. Jafnframt er kveðið á um búnað og þjálfun slökkviliðsmanna vegna mengunaróhappa á landi og björgunar á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
Drög að reglugerð um starfsemi slökkviliða hafa áður farið í opið kynningarferli en eru nú kynnt á ný í kjölfar frekari vinnslu þeirra.
Frestur til að skila umsögnum um reglugerðardrögin er til og með 15. maí nk. og má senda þær á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Drög að reglugerð um starfsemi slökkviliða (pdf-skjal)