Framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, blaðam.fundur
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________
Nr. 020
Blaðamannafundur með framkvæmdastjóra Evrópuráðsins
Daniel Tarschys, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins kemur í heimsókn til Íslands í dag, mánudaginn 25. mars. Hann heldur
utan að morgni miðvikudags 27. mars. Framkvæmdastjórinn á hér fund með ráðamönnum og hittir forseta Íslands.
Boðað er til blaðamannafundar með Daniel Tarschys á Hótel Holti, þriðjudaginn 26. mars kl. 17:15 stundvíslega.
Hjálagt fylgja helstu æviatriði framkvæmdastjórans og dagskrá heimsóknarinnar.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 25. mars 1996.