Mál nr. 47/2016 Úrskurður 6. maí 2016
Mál nr. 47/2016 Millinafn: Pollux
Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47/2016 en erindið barst nefndinni 4. maí:
Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Pollux telst ekki dregið af íslenskum orðstofnum og fullnægir því ekki skilyrðum laga um mannanöfn, sbr. úrskurð mannanafnanefndar frá 27. febrúar 2009 í máli nr. 22/2009 (Zar).
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Pollux er hafnað.