Beint streymi frá heilbrigðisþingi, föstudag 20. ágúst kl. 9-16
Framtíðarsýn um heilbrigðisþjónustu við aldraða verður meginefni heilbrigðisþingsins föstudaginn 20. ágúst sem hefst kl. 9.00 með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Fólk er hvatt til að fylgjast með áhugaverðu þingi í beinu streymi og taka virkan þátt í gegnum forritið Slido. Streymt er á vefnum www.heilbrigdisthing.is. Þar eru nánari upplýsingar um efni þingsins, m.a. um gestafyrirlesarann Dr. Samir Sinha öldrunarlækni sem er eftirsóttur víða um lönd sem sérfræðingur í stefnumótun innan heilbrigðiskerfa og á sviði þjónustu við aldraða.
Upplýsingar um notkun forritsins Slido eru á vef þingsins.
Myndin af dagskrá þingsins stækkar þegar smellt er á hana.