Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2015 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 6/2015 úrskurður 21. janúar 2015

Mál nr. 6/2015                       Eiginnafn:      Joakim

 


Hinn 21. janúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 6/2015 en erindið barst nefndinni 15. janúar:

 

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

(2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

(3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er meðal annars vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði (3) hér að ofan. Ritháttur nafnsins Joakim (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan ‘oa'kemur ekki fram í íslenskum nöfnum. Í nöfnum af þessu tagi er samstafan skrifuð ‘óa' samkvæmt venjulegum íslenskum framburði (samanber nafnið Jóakim). Nafnið uppfyllir því ekki að fullu skilyrði mannanafnalaga. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.


Samkvæmt gögnum Þjóðskrár þá ber enginn karl nafnið Joakim í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði mannanafnanefndar varðandi hefð. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Það telst því ekki vera hefð fyrir nafninu Joakim.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Joakim (kk.) er hafnað.

 

 

 

 


 

 

 

 

 

Brynhildur G. Flóvenz                                                            Jóhannes Bjarni Sigtryggsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta