Hoppa yfir valmynd
22. september 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 120/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 120/2022

Fimmtudagurinn 22. september 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. febrúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. janúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 84.808 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 23. febrúar 2022. Með bréfi, dags. 1. mars 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð 13. apríl og 13. júní 2022. Með bréfi, dags. 14. júní 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. júní 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð 13. júlí 2022 og var fylgt eftir með símtali starfsmanns úrskurðarnefndar velferðarmála 9. ágúst 2022. Kærandi upplýsti þá að hún vildi vita hvernig skuldin yrði felld niður. Hún myndi hafa samband við úrskurðarnefndina þegar hún væri komin með upplýsingar frá Vinnumálastofnun.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. janúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því myndi hin kærða ákvörðun verða afturkölluð.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta