Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Leitað að ungleiðtogum fyrir heimsmarkmiðin

Sameinuðu þjóðirnar leita að ungum leiðtogum í þágu heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun. Skrifstofa erindreka ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum leitar nú að 17 framúrskarandi einstaklingum til að skipa hóp ungra leiðtoga heimsmarmiða samtakanna. Í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna segir að markmiðið sé að viðurkenna og virkja ungt fólk sem hefur tekið af skarið í baráttunni gegn fátækt, loftslagsbreytingum og ójöfnuði, svo eitthvað sé nefnt af heimsmarkmiðunum 17.

„Valið á ungleiðtogunum er til marks um þá fullvissu að ungt fólk sé hreyfiafl til góðs í heiminum og hafi hugmyndaflug, kjark og hugvit til þess að finna varanlegar lausnir til að ná Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun,“ segir í fréttinni.

Ungu leiðtogarnir eru valdir á tveggja ára fresti og hafa fram að þessu verið valdir úr ýmsum greinum, frá matvælaframleiðslu til tískuiðnaðar. Þeim er ætlað að starfa með Sameinuðu þjóðunum að virkja ungt fólk í þágu heimsmarkmiðanna.

Edda Hamar, ung íslensk kona búsett í Ástralíu, var í hópi fyrstu ungleiðtoganna sem valdir voru.

Ungleiðtogarnir munu starfa með Sameinuðu þjóðunum sem hópur en einnig halda áfram á þeim vettvangi sem þeir hafa unnið að fram að þessu í þágu heimsmarkmiðanna.

Við val hópsins eru eftirtalin atriðið tekin með í reikninginn:

• Árangur – Áþreifanlegur árangur í að vinna að framgangi þýðingarmestu heimsmarkmiðanna.
• Áhrif – Persónuleg áhrif á sínu sviði og viðkomandi sé kunn(ur) fyrir skapandi forystu án mismununar.
• Ráðvendni – Að hafa sýnt af sér heiðarleika og trúfestu við heimsmarkmiðin og gildi Sameinuðu þjóðanna.

Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2020.

Sækið um hér!

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta