Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks: Áætlunin í heild sinni og auðlesin útgáfa

Landsáætlunina má nálgast bæði í heild sinni og í auðlesinni útgáfu. - mynd
Fyrsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks hér á landi var samþykkt á Alþingi á dögunum. Áætlunina má nálgast á vefnum bæði í heild sinni og í auðlesinni útgáfu.

Áætlunin felur í sér 60 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi.  

„Ísland er nú í fyrsta sinn með heildstæða stefnu í málefnum fatlaðs fólks. Landsáætlunin var unnin í breiðu og einstöku samráði fatlaðs fólks, hagsmunasamtaka, stjórnvalda og almennings. Ég er ákaflega stoltur af áætluninni sjálfri, sem og gerð hennar,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Landsáætlunin felur í sér skýra framtíðarsýn, kortlagningu, greiningu og mat á kostum til að stuðla að farsælli innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Leiðarljósið er að fatlað fólk geti notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við annað fólk.“ 

Fjölmennur hópur fólks vann að gerð landsáætlunarinnar

Aðgerðirnar í landsáætluninni eru fjölbreyttar og snerta fjölmörg málefnasvið, stofnanir, sveitarfélög og aðra hagaðila. Þær eru á ábyrgð tíu ráðuneyta. 

Fjölmennur hópur fólks vann sem fyrr segir að gerð áætlunarinnar en alls störfuðu 11 vinnuhópar með verkefnisstjórn. Fulltrúi samtaka fatlaðs fólks stýrði hverjum og einum vinnuhópi en í hópunum sátu fulltrúar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks; Geðhjálpar, Landssamtakanna Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúar Stjórnarráðsins, þ.e. starfsmenn ráðuneyta eða stofnana þeirra. 

33 ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var skipt upp á milli vinnuhópanna og á grundvelli greiningar á stöðu hvers ákvæðis hér á landi mótuðu vinnuhóparnir tillögur að aðgerðum til að nálgast markmið samningsins. Landsáætlunin var lögð fram sem tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024-2027. Það var sú þingsályktunartillaga sem samþykkt var á dögunum. 

Alþingi hefur áður samþykkt tvær framkvæmdaáætlanir í málefnum fatlaðs fólks, fyrir árin 2017-2021 og 2012-2014, en landsáætlun er á hinn bóginn hluti af heildstæðri stefnumótun í þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks. Henni er ætlað að ná til allra þeirra málefnasviða sem undir samninginn heyra. 

Aðgerðirnar í áætluninni falla undir sex þætti: Vitundarvakningu og fræðslu, aðgengi, sjálfstætt líf, menntun og atvinnu, þróun þjónustu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

 

Landsáætlunin inniheldur 60 aðgerðir sem eru á ábyrgð 10 ráðuneyta.

Fjölmennur hópur fólks vann að gerð landsáætlunarinnar sem nú hefur verið samþykkt á Alþingi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta