Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2024
Mánudaginn 4. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2024, sbr. reglugerð nr. 1178/2023.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088) samtals 4.700 stk., á meðalverðinu 27 kr/stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á jafnvægisverðinu 50 kr./stk.
Tvö tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093) samtals 2.300 stk. Úthlutað var til tveggja fyrirtækja, en til úthlutunar var 3.000 stk.
Sex tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 47 kr./stk. Hæsta boð var 75 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum, um innflutning á 2.000 stk. á jafnvægisverðinu 61 kr./stk.
Fimm tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 17.000 stk., á meðalverðinu 46 kr./stk. Hæsta boð var 65 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á jafnvægisverðinu 61 kr./stk.
Fimm tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 242.250 stk. á meðalverðinu 30 kr./stk. Hæsta boð var 61 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á jafnvægisverðinu 7 kr./stk.
Matvælaráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2024
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
440 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
1.760 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2024
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
300 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
2.000 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
Rósir janúar – júní 2024
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
400 |
Krónan ehf |
1.600 |
Samasem ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2024
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
8.000 |
Samasem ehf |
Afskorin blóm janúar – júní 2024
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
5.000 |
Blómabúð Akureyrar ehf |
20.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
39.700 |
Grænn markaður ehf |
300 |
Krónan ehf |
101.250 |
Samasem ehf |
Reykjavík, 14. desember 2023
Matvælaráðuneytið