Dóms- og kirkjumálaráðherra fundar um öryggismál.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, boðaði fimmtudaginn 28. september til þriggja funda í ráðuneyti sínu um stöðu öryggismála þjóðarinnar við brottför varnarliðsins. Fyrsta fundinn sátu Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og samstarfsmenn hans. Á öðrum fundinum voru fulltrúar Landhelgisgæslu Íslands þeir Georg Lárusson forstjóri og Auðunn F. Kristinsson yfirstýrimaður. Þriðja fundinn sátu síðan Sveinn Ingiberg Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, og Páll E. Winkel, framkvæmdastjóri landssambandsins.
Á fundunum fór ráðherra yfir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins og þau ákvæði í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna, sem snerta sérstaklega stofnanir og starfsmenn á verksviði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Yfirlýsinguna og samkomulagið má nálgast á vef forsætisráðuneytisins.