Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2024 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður innlausnarmarkaðar fyrir greiðslumark sauðfjár

Innlausnarmarkaður ársins 2024 með greiðslumark í sauðfé var haldinn þann 15. nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 131 umsókn um kaup og 24 umsóknir um sölu.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Innlausnarverð ársins jafngildir beingreiðslum næstu tveggja ára og er 10.762,- kr./ærgildi. Sama verð gildir fyrir kaup og sölu.

Alls var óskað eftir 32.000 ærgildum til kaups. Til ráðstöfunar voru 4.266 ærgildi eða 13% af kaupóskum. Úthlutað var samkvæmt forgangsreglum reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr 144/2022. Af 131 umsækjanda alls töldust 99 til forgangshóps og 32 til almenns hóps. Allt það greiðslumark sem var til ráðstöfunar rann til forgangshóps.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt úthlutun. Matvælaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram.

Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta