Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 709/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 30. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 709/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU2309010124

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. september 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2023, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 2. febrúar 2023. Þá sóttu faðir kæranda, […] og tvö systkini, um alþjóðlega vernd 11. júlí 2022, 10. ágúst 2022 og 19. júlí 2023 og verður fjallað efnislega um umsóknir þeirra í sérstökum úrskurði. Með ákvörðun, dags. 13. mars 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ákvörðun Útlendingastofnunar var felld úr gildi með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 237/2023, dags. 28. apríl 2023 og var Útlendingastofnun gert að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 3. ágúst 2023, ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2023 var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Ákvörðun Útlendingastofnunar var kærð til kærunefndar útlendingamála 14. september 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 14. október 2023.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna vandamála föður síns í Kólumbíu. Faðir kæranda kvaðst hafa verið hótað af liðsmönnum frelsishers Kólumbíu eða FARC. Faðir kæranda hafi einnig glímt við hjartveiki.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og henni skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærandi var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í sameiginlegri greinargerð kæranda og föður hennar og systkina, kemur fram að þau mótmæli niðurstöðu Útlendingastofnunar og vísa til þeirra gagna sem þau hafi lagt fram með umsókn sinni sem sýni að þau séu í hættu vegna meðlima skæruliðahóps í heimaríki sem hafi ofsótt þau og að full ástæða sé til að óttast áframhaldandi ofsóknir snúi þau aftur til heimaríkis. Lögreglukærur og lögregluvernd sem þeim hafi verið veitt renni stoðum undir frásagnir þeirra. Í greinargerð sé mati stofnunarinnar á hæfi lögregluyfirvalda til að veita þeim viðhlítandi vernd mótmælt. Þegar þeim hafi verið veitt lögregluvernd hafi þeim verið sagt að lögreglan hefði ekki burði til að vernda sjálfa sig, hvað þá almenna borgara. Það samræmist frásögnum annarra flóttamanna og skýrslum mannréttindasamtaka, sem séu samhljóða um ofbeldi af hálfu lögreglu í ríkinu og getuleysi til að veita borgurum trausta vernd. Þau hafna því að afbrot séu fátíð í heimahéraði þeirra, sem og að ítök skæruliðahópa séu ívið minni þar en annarsstaðar í heimaríki. Afbrot séu mjög algeng og ósjaldan séu hópar skæruliða á götum úti. Þá hafi faðir kæranda reynt að losna undan taki skæruliðahóps en þrátt fyrir ítrekaðar greiðslur hafi hópurinn haldið áfram að ofsækja þau. Því telji þau ljóst að ofsóknirnar muni halda áfram verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Lögregluyfirvöld geti ekki veitt þeim viðhlítandi vernd og hópurinn muni ekki stöðva háttsemi sína þótt þau myndu flytja innanlands enda um landlægt vandamál að ræða. Faðir kæranda hafi reynt að losna úr taki skæruliðahóps sem ofsæki fjölskylduna en þrátt fyrir ítrekaðar greiðslur hafi skæruliðarnir haldið kúgunum áfram. Þau óttist að bróðir kæranda verði hnepptur í vinnuánauð auk þess sem konur séu í sérstakri hættu. Verði þeim ekki veitt alþjóðleg vernd eða viðbótarvernd krefjast þau þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga með vísan til lífshættulegra aðstæðna þeirra í heimaríki.

Faðir kæranda glími við lífshættulegan sjúkdóm og geti ekki fengið viðeigandi meðferð í heimaríki. Sjúkratryggingar í Kólumbíu hafi neitað honum um meðferðina. Þá geti hann ekki greitt fyrir lyfjameðferð í heimaríki, enda kosti hún ríflega lágmarkslaun. Myndi hann greiða fyrir hana gæti hann ekki séð fjölskyldu sinni fyrir húsaskjóli og fæði. Ljóst sé að þrátt fyrir að heilbrigðisþjónusta teljist ekki óaðgengileg ef greiða þurfi fyrir hana, eigi það ekki við þegar kostnaður vegna lífsnauðsynlegrar meðferðar nemi nærri fullum mánaðarlaunum. Veikindi hans séu raunveruleg og alvarleg. Hann hafi leitað á bráðavakt eftir komu til Íslands og fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og lyfjameðferð. Verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis muni hann ekki hljóta þá þjónustu og hætt sé við alvarlegum afleiðingum. Byggir kærandi því á því að 42. gr. laga um útlendinga standi endursendingu þeirra í vegi. Byggir kærandi jafnframt á því að hagsmunir kæranda og systkina hennar skulu hafðir að leiðarljósi. Aðstæður barnanna séu vægast sagt slæmar og raunar lífshættulegar.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi lagt fram kólumbískt kennivottorð og fæðingarvottorð sem beri með sér að kærandi sé með kólumbískt ríkisfang. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að fæðingarvottorð sýni að hún sé dóttir […], sem hafi sannað auðkenni sitt í málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Acled. Dashboard, 24. febrúar 2022 – 24. febrúar 2023.
  • Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
  • Children and armed conflict in Colombia – Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. desember 2021);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia: First-ever indictments against ex- FARC fighters for child soldier recruitment (Le Monde, 9. mars 2023);
  • Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022); 
  • Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
  • Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 11. maí 2023);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 13. nóvember 2023);
  • Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
  • Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
  • Resolution 2573(2023) (United Nations Security Council, 11. janúar 2023);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • The struggle of child soldiers in Colombia (The Borgen Project, 5. febrúar 2022);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. nóvember 2023);
  • How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • 2021 Country Report on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
  • Upplýsingar af vefsíðu International Insurance (Overview of Colombia Healthcare System | International Insurance, síðast skoðað 3. apríl 2023) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um réttindi barnsins árið 1991, ásamt valfrjálsri bókun um þátttöku barna í vopnuðum átökum árið 2005 og valfrjálsri bókun um sölu á börnum, barnavændi og barnaklámi árið 2003. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka.

Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army).  Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í desember 2022 hafi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) greint frá því að 78 þúsund manns hafi hrakist á flótta á árinu 2022 sem sé aukning frá árinu áður.

Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin ilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi framlengt umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC meðlima á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 24. mars 2023 kemur fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð nefndarinnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára. 

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett var á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í. 

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallarmannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu rekur heilbrigðiskerfið sjúkratryggingar sem beri heitið Entidades Promotoras de Salud (EPS). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja.

Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.

Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.

Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum varðandi þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.

Í skýrslu International Crisis Group frá 2023 kemur fram að meðlimir glæpahópa í Kólumbíu hafi um árabil stundað það að fá ólögráða börn til að taka þátt í starfsemi sinni. Afsprengihópar FARC hafi fengið fjölda nýrra meðlima frá árinu 2016 og barnaverndarkerfi Kólumbíu hafi skráð 1166 tilvik þar sem börn undir 18 ára aldri séu nýir meðlimir. Glæpahópar nýti sér heimsfaraldur og efnahagsþrengingar í dreifbýli Kólumbíu til að laða að sér nýja meðlimi. Talið sé að meira en helmingur tilvika sé í norður Cauca héraði og annars staðar þar sem glæpahópar hafi sterka viðveru. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 og skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að ólöglegir hópar haldi áfram að þvinga börn til þátttöku í vopnuðum átökum og kynlífsþrælkun.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna vandamála föður síns í Kólumbíu. Faðir kæranda kvaðst hafa verið hótað af liðsmönnum frelsishers Kólumbíu eða FARC. Þá hafi faðir hennar einnig glímt við hjartveiki.

Þegar kærandi sótti um vernd hér á landi var hún ekki orðin 18 ára og miðaðist málsmeðferð stofnunarinnar í máli hennar við að hún væri barn og fór hún í barnaviðtal 16. febrúar 2023. Hún varð 18 ára […]. og fór kærandi á ný í viðtal hjá Útlendingastofnun 3. ágúst 2023 ásamt talsmanni sínum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi fæðst í […] í Kólumbíu og alist upp frá sjö ára aldri í Bógóta í Cundinamarca héraði. Hún hafi búið hjá móður sinni en faðir hennar hafi búið rétt hjá. Móðir hennar starfi í apóteki og að faðir hennar hafi unnið við ýmislegt. Þá kvaðst hún eiga einn bróður hér á landi og eina samfeðra hálfsystur sem búi hjá ömmu þeirra. Hún eigi tvær ömmur sem séu heimavinnandi og afa. Kærandi kvaðst ekki hafa orðið fyrir ofbeldi en kvað mikið ofbeldi vera þar í landi. Hún hafi stundað nám og verið að útskrifast úr menntaskóla. Hún hafi í frítíma sínum verið heima eða heimsótt vinkonur sínar. Hún hafi greint frá því hún væri heilsuhraust en hafi fengið einhvers konar magasár árið 2021 og fengið læknishjálp vegna þess. Hún greindi frá því að faðir hennar hafi lent í vandræðum og þess vegna hafi þau yfirgefið Kólumbíu. Kærandi hafi ávallt hitt föður sinn þar sem mikið væri af öðru fólki, vegna þess að hann hafi áður orðið fyrir skoti, og viljað verja hana og systkini hennar. Hún óttist um bróður sinn enda hafi hún heyrt að hryðjuverkamenn hafi ætlað að reyna að fá bróður hennar til að vinna fyrir sig. Þá hafi hún greint frá því að hún hafi komið til Íslands vegna veikinda föður hennar og að hún væri að aðstoða hann. Kærandi greindi frá því í viðtalinu að móðir hennar væri búsett í […] og amma hennar og afi hafi flutt á öruggara svæði til […]. Kærandi kvaðst geta búið hjá móður sinni snúi hún aftur til heimaríkis en að þær séu ekki nánar.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að gögnin sýni fram á að á öðrum svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna.

Kærandi bar aðeins fyrir sig sömu málsástæður og faðir hennar. Kærunefnd hefur tekið afstöðu til þeirra málástæðna í úrskurði kærunefndar nr. 708/2023. Er það niðurstaða kærunefndar með vísan til framangreindra upplýsinga um heimaríki kæranda að ekki sé ástæða til að draga í efa að faðir kæranda kunni að hafa orðið fyrir fjárkúgunum og hótunum af hálfu meðlima glæpahópa í heimaríki. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum þar í landi, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- og skæruliðahópa séu slík í Cundinamarca héraði í Kólumbíu að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda telji hún ástæðu til þess. Kærandi hafi því raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hún telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Þrátt fyrir að gögn um aðstæður kvenna í Kólumbíu gefi til kynna að staða þeirra geti verið erfið, m.a. vegna kynbundins ofbeldis þar í landi þá er það mat kærunefndar, með vísan til framangreindra heimilda og umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu, að þær aðstæður nái ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Hefur við það mat m.a. verið horft til þess að í landinu eru til staðar úrræði í réttar- og félagslega kerfinu fyrir konur sem verði fyrir kynferðisofbeldi, öðru ofbeldi eða mismunun. Þá vinni stjórnvöld að því að bæta stöðu kvenna með ýmsum aðgerðum s.s. lagasetningu og gerð aðgerðaráætlana sem ætlað er að vernda konur og veita þeim aðgang að nauðsynlegum úrræðum. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt áreiti eða mismunun vegna kyns síns eða af öðrum ástæðum. Er það því mat kærunefndar að hún muni ekki eiga á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns eða af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997.

Kærandi vísar til þess að hún sé í hættu vegna glæpahóps sem hafi beitt föður hennar fjárkúgun og hótað henni og systkinum hennar. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunna að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Cundinamarca héraði, er það mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði henni gert að snúa til Kólumbíu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður kæranda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á hún ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Faðir kæranda greindi frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt kæranda, föður hennar og systkinum fullnægjandi vernd. Geti þau ekki lifað öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi og hefndaraðgerðum í heimaríki sínu og að ástand mannréttindamála þar í landi sé slæmt og félagslegar aðstæður bágbornar. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að almennar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr., mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans. Þá kemur fram í framangreindum athugasemdum við lagafrumvarpið að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. 5. mgr. 43. gr. a. reglugerðar um útlendinga kemur fram að þegar stjórnvöld taka ákvörðun um veitingu og útgáfu dvalarleyfis á þessum forsendum skal taka mið af fyrirliggjandi gögnum, þar á meðal læknisvottorðum og öðrum læknisfræðilegum gögnum. Umsækjandi ber sjálfur ábyrgð á að afla slíkra gagna og leggja fram við meðferð málsins hjá stjórnvöldum.

Kærandi hefur greint frá því að hún hafi fengið magaverki árið 2021, eða einhvers konar magasár og fengið læknishjálp við því. Þá hefur hún greint frá því að veikindin hafi ekki haft varanleg áhrif nema að hún passi vel upp á mataræðið sitt. Kærandi greindi einnig frá því að hún sé með nærsýni og hafi haft aðgang að augnlækni vegna þess í heimaríki. Eins og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum í Kólumbíu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu. Heilbrigðisþjónusta sé góð og sjúkratryggingakerfi í boði fyrir ríkisborgara með litlum tilkostnaði. Heimildir um heilbrigðisþjónustu í Kólumbíu benda til þess að hún sé góð og aðgengileg. Af gögnum málsins er ljóst að faðir kæranda hafi fengið heilbrigðisþjónustu í heimaríki og lyf. Er það mat kærunefndar að hann geti áfram fengið þá heilbrigðisþjónustu og lyf sem hann þarfnast í heimaríki sínu. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að kærandi sé við góða andlega og líkamlega heilsu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Í gögnum málsins kemur fram að faðir kæranda hafi verið fær um að framfleyta henni og systkinum hennar í heimaríki, auk þess hafi þau gengið í skóla og kærandi hafi lokið við nám í framhaldsskóla. Kæranda og fjölskyldu hennar hafi ekki skort neitt, svo sem húsnæði, mat eða klæði. Þá hafi móðir kæranda verið að vinna hjá lyfjafyrirtæki í heimaríki. Í umræddum athugasemdum kemur einnig fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að kærandi hafi aðgang að heilbrigðis- og skólakerfi landsins og geti leitað aðstoðar yfirvalda þar í landi. Þá sé móðir hennar og aðrir fjölskyldumeðlimir í heimaríki.

Kærunefnd telur að þrátt fyrir þær aðstæður sem kærandi hefur greint frá hafi hún hlotið menntun og hafi möguleika á að fá atvinnu í heimaríki. Kærandi njóti auk þess stuðnings fjölskyldu í heimaríki. Jafnframt hafi kærandi aðgang að félagslegu kerfi í Kólumbíu auk þess sem henni stendur til boða stuðningur og úrræði í heimaríki vegna hótana og áreitis sem hún hefur greint frá. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga 

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.  

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 2. febrúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling, til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 2. febrúar 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa henni úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri henni frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Með tölvubréfi, dags. 3. ágúst 2023 var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Í málinu liggur fyrir að kærandi á föðurbróður hér á landi. Kærandi telji það ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér að ákveða henni brottvísun og endurkomubann vegna þess að þá geti hún ekki farið til annarra landa.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hennar og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.

Í ákvörðunarorðum Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hún landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta