Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2023 Matvælaráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins

Óskað eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins - myndiStock/Karel Stipek

Matvælaráðherra veitir landbúnaðarverðlaun árlega í tengslum við Búnaðarþing.

Úthlutunarnefnd á vegum matvælaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um bændabýli, önnur landbúnaðarfyrirtæki eða félög sem talin eru hafa verið á einhvern hátt til fyrirmyndar í íslenskum landbúnaði á næstliðnu ári.

Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningum. Þar skulu koma fram helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír og mun úthlutunarnefndin velja verðlaunahafa.

Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar, loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni.

Tillögur skulu berast eigi síðar en 1. mars 2023, merktar „Landbúnaðarverðlaun“ á netfangið [email protected]. Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst 1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 24 skipti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta