Hoppa yfir valmynd
28. september 2020 Utanríkisráðuneytið

„Námið á Íslandi opnaði augu mín fyrir nýjum lausnum“

Toshpulot Rajabov (t.h.) við rannsóknir. Ljósmynd: Landgræðsluskólinn. - mynd

„Námið við Landgræðsluskólann reyndist mér afar gjöfult því það opnaði augu mín fyrir margvíslegum nýjum lausnum og aðferðum sem ég nýtti mér í doktorsnáminu,“ segir Toshpulot Rajabov, sviðsforseti líftækni og fæðuöryggissviðs Samarkand ríkisháskólans í Úsbekistan, en sviðið hýsir meðal annars jarðvegsvísindi, landbúnaðartækni, áburðarfræði og ávaxtarækt. Hann segir í samtali við Heimsljós að sex mánaða nám hans í Landgræðsluskólanum hér á landi hafi opnað honum dyr að frekari þekkingaröflun sem nú nýtist nemendum og samstarfsfólki í háskólanum.

Toshpulot Rajabov var sérfræðingur í deild vistfræði og vatna við Samarkand ríkisháskólann, einni af samstarfsstofnunum Landgræðsluskólans í Úsbekistan, þegar hann kom til náms við skólann, þá með meistaragráðu í plöntuvísindum. Þegar hann kom hingað til lands var hann byrjaður í doktorsnámi við Samarkand ríkisháskólanum. Hann ákvað að nota gögn úr doktorsnáminu í lokaverkefninu sem hann vann við Landgræðsluskólann, sem er hluti af náminu og unnið seinni hluta námstímabilsins, undir leiðsögn leiðbeinanda.

Verkefnið hans við Landgræðsluskólann fjallaði um áhrif beitar á gróðurfar og hann notaði meðal annars fjarkönnunargögn við þá vinnu. „Þessi reynsla nýttist mér svo til að þróa doktorsnámið mitt inn á svið sem annars hefði ekki verið mögulegt. Við Landgræðsluskólann fékk ég einnig fleiri hugmyndir að verkefnum sem gætu hjálpað við að koma á sjálfbærari nýtingu beitilandanna heima í Úsbekistan,“ segir hann.

Toshpulot sótti um styrki til að koma verkefnunum í framkvæmd og hlaut meðal annars styrk frá DAAD í Þýskalandi, námsstyrk frá Skógarstofnun Bandaríkjanna, og Fulbright rannsóknarstyrk.

Eftir að hann  lauk námi í Landgræðsluskólanum hafa honum verið falin ábyrgðamikil störf við Samarkand ríkisháskólann og núna er hann sviðsforseti líftækni og fæðuöryggissviðs háskólans. Með starfi sínu við háskólann er hann í stöðu til að efla fræðasvið um nýtingu náttúruauðlinda, mennta ungu kynslóðina og hvetja hana til dáða.

Samarkand ríkisháskólinn í Úsbekistan fagnar 600 ára afmæli um þessar mundir og rekur upphaf sitt til Registan sem var bæði moska og skóli í miðborg Samarkand. Það er eitt af kennileitum borgarinnar og jafnframt á heimsminjaskrá UNESCO.

Landgræðsluskóli GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu - er einn fjögurra skóla sem starfa hér á landi undir merkjum Mennta, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í þeim tilgangi að efla færni og þekkingu í þróunarríkjum. Skólarnir eru hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta