Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
Í gær var haldinn ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og var dagskrá fundarins með þeim hætti að Ingi Valur Jóhannsson, formaður framkvæmdastjórnar setti fundinn. Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra ávarpaði fundinn. Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu gerði grein fyrir ársskýrslu Ráðgjafarstofu fyrir árið 2005. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ og Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur og forstöðumaður Greiningardeildar L.Í. fjölluðu um skuldir heimilanna. Að lokum voru fyrirspurnir og umræður.
Glærur frá fundinum:
- Ásta Sigrún Helgadóttir – ársskýrsla Ráðgjafarstofu fyrir árið 2005
- Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ – Skuldir heimilanna
- Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur og forstöðumaður Greiningardeildar L.Í. – Skuldir heimilanna
Ársskýrsla 2005
- Ársskýrsla 2005 (pdf, 800kb)