Hoppa yfir valmynd
18. maí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Tæplega þrjú þúsund manns í framboði

Alls eru 184 listar í framboði til 74 sveitarstjórna í kosningunum 31. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2.916 einstaklingar, 1536 karlar og 1380 konur. Karlar eru 53% frambjóðenda, konur 47%. Þessi hlutföll eru hin sömu og voru í síðustu sveitarstjórnarkosningum, árið 2010.

Í komandi kosningum eru: 


Listakosningar í 53 sveitarfélögum
Í 53 sveitarfélögum hafa verið lagðir fram fleiri en einn listi og mun því hlutfallskosning fara þar fram.

Sjálfkjörið í þremur sveitarfélögum
Í þremur sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og er því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir.

Óbundnar kosningar í 18 sveitarfélögum
Óbundnar kosningar verða í 18 sveitarfélögum þar sem enginn listi kom fram. Í óbundnum kosningum eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því.

Samanburður við kosningarnar 2010
Allt er þetta samhljóða því sem var í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Þá voru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna. Á listunum áttu sæti 2.846 einstaklingar og hlutföllin milli kynjanna voru, eins og áður sagði, hin sömu og nú. Listakosningar fóru fram í 54 sveitarfélögum árið 2010 og óbundnar kosningar í 18. Í fjórum sveitarfélögum kom aðeins fram einn listi og var því sjálfkjörið í þær sveitarstjórnir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta