Félagsmálaráðherra veitir styrki vegna atvinnumála kvenna
Í febrúar s.l. var auglýst eftir styrkumsóknum vegna atvinnumála kvenna. Tilgangur styrkveitinga var fjórþættur; sem vinnumarkaðsaðgerð til að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna, viðhalda byggð um landið, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni og að auka fjölbreytni í atvinnulífi. Hluta fjárins var varið í verkefni á svæðum þar sem atvinnulíf er einhæft og hlutfall atvinnuleysis hátt. Ekki voru gerðar eins strangar kröfur um arðsemi þeirra verkefna en engu að síður var miðað við að styrkurinn væri ekki félagslegt úrræði heldur um raunverulega atvinnusköpun að ræða.
Önnur verkefni voru einnig valin af ráðgjafahópi félagsmálaráðherra eftir ákveðnum forsendum og þeim veittur hærri styrkur.
Áhersla var lögð á atvinnusköpun.
Alls bárust 178 umsóknir og samþykktir hafa verið 44 styrkir sem félagsmálaráðherra veitir. Fjárhæð styrkveitinga nemur 20 milljónum króna og eru verkefnin af ýmsum toga.
Listi yfir styrkþega og tegund verkefna:
Nafn | Fjárhæð | Verkefni |
Afhverju ehf | 750.000 | Fræðandi teiknimyndir og tölvuleikir fyrir börn |
Aftur ehf | 500.000 | Fjöldaframleidd endurunnin föt á markað í Asíu |
Alda Agnes Pálsdóttir | 750.000 | Minjagripapökkuðum vörum frá íslenskum framleiðendum |
Alvarlega félagið ehf | 250.000 | Gerð hannyrðapakkninga sem byggja á íslenskum þjóðararfi |
Anna Dóra Markúsdóttir | 400.000 | Hundahótel og ræktunaraðstaða í Grundarfirði |
Anna Sigurveig Magnúsdóttir | 750.000 | Íslenskur tölvuleikur með táknmáli fyrir börn |
Astrid Örn-Aðalsteinsson | 600.000 | Fjölskylduspil |
Auður Vala Gunnarsdóttir | 400.000 | Heilsuræktarstöð á Egilsstöðum |
Ásdís Jónsdóttir | 400.000 | Nuddstofa á Ströndum |
Áslaug Pálsdóttir | 300.000 | Upplýsingaöflunarfyrirtæki |
Berglind Lilja Þorbergsdóttir | 200.000 | Heilsuræktarstöð í Stykkishólmi |
Bergljót Arnalds | 750.000 | Útflutningur á íslensku barnaefni með kennslugildi |
Birna Stefanía Jóhannsdóttir | 300.000 | Laufakökuframleiðsla úr postulíni |
Draumasetrið Skuggsjá | 200.000 | Menningartengd ferðaþjónusta |
Elín Heiða Valsdóttir | 500.000 | Fósturvísatalningar í sauðfé |
Erna Reynisdóttir | 500.000 | Leiktækjaleiga fyrir leikskóla og stofnanir |
Ferðamálafélagið Súlan / Karen Rut Konráðsdóttir | 500.000 | Markaðsmál kvenna í ferðaþjónustu í Þistilfirði |
Fjóla Hilmars | 500.000 | Ljósastangir fyrir glugga |
Guðríður Guðmundsdóttir | 250.000 | Sumarbúðir í Hrauni Ingjaldssandi |
Helga Davids | 200.000 | Bókamerki og póstkort með þurrkuðum og pressuðum blómum |
Helga Jóhannesdóttir | 250.000 | Fjöldaframleiddur mokkabolli |
Ingibjörg Hanna Pétursdóttir | 750.000 | Hönnun og þróun nýs ullarefnis sem söluvöru |
Ísgel ehf | 700.000 | Útrás með gelmottur |
Karen Rut Konráðsdóttir | 300.000 | Tölvu- og prentþjónusta á Þórshöfn |
Kiesel Software | 750.000 | Hugbúnaðarframleiðsla hljóðvinnslu og tónlistargerðar fyrir alþjóðamarkað |
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir | 300.000 | Útrás minjagripaframleiðslu |
Lilja Kristín Magnúsdóttir / Lína Hrönn Þorkellsdóttir | 200.000 | Táknmálsþýðingar á íslenskum vefsíðum |
Margret Einarsdóttir | 300.000 | Nuddstofa/heilsulind á Höfn |
Margrét Lára Jóhannsdóttir | 150.000 | Kertaframleiðsla á Dalvík |
Olga Andreasen | 300.000 | Stunguvél til bútasaums |
Rósa Helgadóttir | 750.000 | Útrás með framleiðslu á geimtöskum |
Sigrún Sveinbjörnsdóttir | 300.000 | Heilsubúðir á Höfn fyrir offitusjúklinga |
Sólrún Ólafsdóttir | 300.000 | Bókhaldsþjónusta á Kirkjubæjarklaustri |
Sólveig Þorvaldsdóttir | 750.000 | Ráðgjöf, rannsóknir og fræðsla á sviði náttúruhamfara ofl |
Stefanía Hjördís Leifsdóttir | 400.000 | Vistunarheimili í Fljótum fyrir börn með hegðunarerfiðleika |
Svandís Stefánsdóttir | 350.000 | Hjálparbúnaður fyrir fatlaða |
Ulla R. Pedersen | 450.000 | Landslagssarkitekt í Öræfum |
Unnur Knudsen Hilmarsdóttir | 500.000 | Fjöldaframleiddar áður handunnar vörur |
Vaxandi ehf / Helga Björg Jónasardóttir | 500.000 | Nytjahlutir og skrautmunir úr vaxi |
Vigdís Klara Aradóttir | 250.000 | Listasmiðja í Svarfaðardal |
Vinnuheiti - Huglind - Miðhvammi | 750.000 | Ritvinnsluver fyrir fjölmiðla, vefsíður ofl. í Aðaldælahreppi |
Þórunn Guðgeirsdóttir | 450.000 | Fótaaðgerðastofa á Egilsstöðum |
Athafnakonur | 750.000 | Sýninga- og ráðstefnuröð |