Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 680/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 680/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23100118 og KNU23100119

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í málum  [...] og [...]

I.        Málsatvik

Hinn 14. september 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 28. apríl 2023, um að umsóknir  [...], fd. 28. maí 1995, ríkisborgara Jórdaníu (hér eftir M), og [...], fd. 10. febrúar 1991, ríkisborgara Palestínu (hér eftir K), um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum hinn 17. október 2023 og 18. október 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt greinargerð og fylgigögnum.

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður aðila

Aðilar vísa til þess í greinargerð að þau krefjist frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, enda hyggist aðilar fara með málið fyrir dómstóla og krefjast ógildingar á ákvörðunum Útlendingastofnunar. Aðilar vísa til þess að fyrir hendi séu sjónarmið í máli þeirra sem styðji það að víkja eigi frá framangreindri meginreglu um framkvæmd ákvörðunar. Aðilar vísa til þess að K sé þunguð og sé gengin um sautján vikur. Þær upplýsingar hafi ekki legið fyrir þegar ákvarðanir í málum þeirra hafi verið teknar. Framkvæmd úrskurðarins myndi valda aðilum óafturkræfum skaða enda hafi ekkert mat verið lagt á það hvort óhætt sé að senda barnshafandi einstakling til Ítalíu. Bendi aðstæður á Ítalíu raunar til þess að svo sé ekki. Þá hafi aðstæður sem þýðingu geti haft fyrir málið breyst verulega og þörf sé á sérstakri varúð með tilliti til hagsmuna ófædds barns aðila.

III.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu þeirra að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafi aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn þeirra um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðilum og umsókn þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að þeim sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsókn aðila um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að þau verði ekki endursend í slíkar aðstæður annars staðar. Kærunefnd telur að gögn sem aðilar lögðu fram með beiðni um frestun réttaráhrifa séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að þau breyti niðurstöðu nefndarinnar varðandi þetta mat. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðilar eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í málum aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Í því sambandi er tekið fram að nefndin hefur kynnt sér þau læknisfræðilegu gögn sem fylgdu beiðni um frestun réttaráhrifa um að K sé nú  barnshafandi og gengin 17 vikur og telur gögnin ekki hafa áhrif á það mat. Í úrskurði kærunefndar í máli aðila kom m.a. fram að aðilar hafi aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu á Ítalíu og ættu rétt á þjónustu í tilteknum móttökumiðstöðvum. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta