Hoppa yfir valmynd
27. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 329/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 329/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23100166

Kæra […] og barna hennar
á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. október 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 12. október 2023, um að synja henni og börnum hennar, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 30. nóvember 2022. Kvað kærandi ástæðu umsóknanna vera ástandið í Venesúela. Hún hafi áhyggjur af framtíð barna sinna þar í landi. Eiginmanni hennar hafi verið rænt fyrir nokkrum árum vegna stjórnmálaskoðana hans og hún finni ekki til öryggis í heimaríki.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 24. maí 2023 og kvað helstu ástæður flótta síns vera þær að hún sé andsnúin stjórnvöldum og hafi sætt mismunun, áreiti og hótunum í heimaríki af hálfu glæpahópanna Tupamaros og Colectívos sökum þess. Kærandi og barnsfaðir hennar hafi verið meðlimir í stjórnmálaflokknum Acción Democrática sem móðir barnsföður kæranda hafi stofnað. Kærandi hafi ásamt barnsföður sínum tekið þátt í mótmælum og undirbúningi kosninga stjórnarandstæðinga og hvatt fólk til að kjósa gegn ríkisstjórninni. Meðlimir glæpahópanna hafi m.a. ráðist á kæranda þegar hún hafi verið stödd í mótmælum og hótað henni og barni hennar lífláti. Barnsföður hennar hafi verið rænt af meðlimum glæpahópanna og honum verið haldið án matar eða drykkjar í tvo daga sökum þess að hann væri stjórnarandstæðingur. Þá hafi mágur kæranda og nágranni hennar verið myrtir í mótmælum gegn stjórnvöldum. Kærandi hafi kært morðið á nágranna sínum til lögreglu en í kjölfarið hafi henni borist símtöl með hótunum, ógnunum og fjárkúgunum frá meðlimum glæpahópanna auk þess sem henni hafi verið hótað að barni hennar yrði rænt. Þá hafi verið keyrt á bíl kæranda í ágúst 2022 er hún hafi verið að yfirgefa heimili sitt ásamt börnum sínum og hafi hún þá ákveðið að yfirgefa heimaríki sitt vegna alls þess sem hafi átt sér stað fram að því.

Barn kæranda, A, mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 4. júlí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. Greindi A þar frá því að föður hennar hafi verið rænt í heimaríki sökum þess að hann væri á móti ríkisstjórn landsins. Þá hafi menn ráðist á móður hennar á meðan hún hafi verið ólétt. A kvað móður sína hafa ákveðið að flýja í kjölfar þess að keyrt hafi verið á fjölskylduna af ásettu ráði fyrir utan heimili þeirra. Greindi A frá því að hafa liðið eins og hún væri í fangelsi í Venesúela og að hún hafi ekki getað hitt vini sína eftir skóla þar sem það hafi verið of hættulegt. Óöryggið hafi verið slíkt að foreldrar hennar hafi ávallt þurft að skutla henni í skólann og á sundæfingar. A kvaðst vera heilsuhraust. Hún hafi ekki þurft að fara til læknis í heimaríki en hún hefði getað það ef þörf hefði verið á.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 26. október 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 9. nóvember 2023. Viðbótarupplýsingar og gögn bárust kærunefnd 7. og 8. desember 2023, 27. febrúar 2024 og 12. og 25. mars 2024.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda og barna hennar lýst. Þar kemur m.a. fram að maki kæranda hafi orðið fyrir ofsóknum og mannráni af hálfu glæpahópanna Tupamaros og Colectívos. Honum hafi verið komið fyrir í holu þar sem honum hafi verið neitað um drykk og mat. Hann beri líkamlegar og andlegar afleiðingar eftir atvikið. Einnig hafi mágur hennar og nágranni verið myrtir af glæpahópum sem þessum þegar þeir hafi verið við mótmæli. Kærandi hafi tekið þátt í mótmælum og sætt ofbeldi, hótunum og fordæmingu, m.a. af nágrönnum sínum. Barn hennar hafi ekki mátt fara inn á leiksvæði eða í íþróttir og hafi það neyðst til að skipta um skóla. Þá hafi kærandi verið vöruð við því af hálfu glæpahóps að mæta á mótmæli árið 2021 sem hún hafi þó gert og hafi hún sætt ofbeldi af hálfu meðlima hópsins og henni verið tjáð að næst yrði hún myrt. Þá hafi verið keyrt á hana og börn hennar af meðlimi glæpahóps af ásettu ráði.

Í greinargerð er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Er einnig vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Þá vísar kærandi til hagsmuna barna sinna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum barna í Venesúela mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og barni hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana og aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi sem stjórnarandstæðingur. Kærandi hafi orðið vitni að morðum á vandamönnum sínum og frelsissviptingu maka síns og skoðanasystkina. Því til viðbótar hafi kærandi orðið fyrir hótunum, ógnunum og árásum. Þá sé kærandi útsettari fyrir ofsóknum fyrir það eitt að hafa dvalið utan Venesúela.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara, með vísan til framangreinds, að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Réttarkerfið í heimaríki kæranda sé að hruni komið og mannréttindabrot þar viðvarandi. Þá telur kærandi að félagslegar aðstæður hennar sem kona og stjórnarandstæðingur auki líkur á útskúfun og ofbeldi við endurkomu. Hætta sé á að hún yrði útilokuð frá félags- og heilbrigðisþjónustu auk þess sem starfsmöguleikar hennar verði takmarkaðir þar sem hún geti ekki starfað sem kennari við ríkisrekna skóla. Þá hafi kærandi ríka þörf fyrir vernd af heilbrigðisástæðum en hún glími við gallsteina og þurfi á skurðaðgerð að halda. Hún muni ekki eiga kost á að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu í heimaríki.

Kærandi telur að með endursendingu hennar og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Er byggt á því að ákvarðanir Útlendingastofnunar brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við hana.

Alþjóðleg vernd

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Verður því við mat á umsóknum að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi og börn hennar séu venesúelskir ríkisborgarar.

Landaupplýsingar

  • Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 5. mars 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 12. mars 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 5. mars 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum.Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Fjárkúgunargjöld séu ákveðin í samræmi við kaupmátt þolandans ven geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Samkvæmt skýrslu EUAA voru þrír sjómenn myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og voru morðin tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Kanada frá 7. febrúar 2023 kemur fram að Tupamaros sé bæði stjórnmálaflokkur og vopnaður hópur sem fari ekki með yfirráð landsvæða. Heimildir beri með sér að hópurinn hafi tengsl við vopnaða hópa á landsbyggðinni, erlend skæruliða- og hryðjuverkasamtök og venesúelsk stjórnvöld. Markmið hópsins séu pólitísk og beini hópurinn athygli sinni að háttsettum stjórnmálamönnum og öðrum háttsettum einstaklingum. Hópurinn sé aðallega með aðsetur í höfuðborginni Karakas en starfi einnig í Lara fylki, Barinas og Mérida.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021 kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna. Hún sé aðili að stjórnmálaflokknum Acción Democrática og hafi tekið virkan þátt í mótmælum og hvatt aðra til að mótmæla og kjósa flokkinn. Kærandi hafi sætt árásum, ógnunum og hótunum vegna stjórnmálaskoðana sinna auk þess sem hún hafi orðið vitni að frelsissviptingu barnsföður síns og morðum á mági sínum og nágranna. 

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali greindi kærandi frá því að vera meðlimur stjórnmálaflokksins Acción Democrática. Kvaðst hún hafa tekið þátt í fjölda mótmæla og undirbúningi kosningaframboðs stjórnarandstæðinga, m.a. með því að hvetja fólk til að kjósa. Kærandi greindi frá því að barnsföður hennar hafi verið rænt árið 2015 af hálfu meðlima Colectívos og Tupamaros. Þeir hafi grafið hann í holu og meinað honum um drykk og mat. Honum hafi síðan verið sleppt eftir tvo daga. Kærandi greindi einnig frá því að mágur hennar hefði verið skotinn í bringuna og dáið þegar hann hafi verið staddur í mótmælum árið 2019. Nágranni hennar hafi einnig dáið af völdum skotsárs í öðrum mótmælum árið 2019 þegar hermenn hafi byrjað að skjóta á mótmælendur. Þá hafi verið ráðist á hana í mótmælum í júlí 2021 af meðlimum glæpahóps og henni verið hótað lífláti. Aðilarnir hafi ýtt kæranda í jörðina, dregið hana eftir götunni og sparkað í líkama hennar en á þeim tíma hafi hún verið ófrísk af yngra barni sínu. Kærandi hafi leitað til læknis en hún hafi áfram fengið hótanir um að hún og barn hennar yrðu myrt. Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hún og barn hennar, A, hafi sætt mismunun vegna stjórnmálaskoðana kæranda. A hafi ekki mátt fara á leikvöll eða í íþróttatíma og hafi kærandi endað með því að senda hana í annan skóla. Þá kvað K bíl hennar hafa verið stolið vegna þess að hún hafi m.a. notað hann til að skutla fólki á mótmæli.

Hinn 21. mars 2024 óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum um atburðarrásina sem kærandi kveður hafa leitt til flótta hennar og barna hennar frá heimaríki, m.a. hvað hafi falist í þeim hótunum sem henni hafi borist, hversu oft kæranda hafi verið hótað og yfir hvaða tímabil, hvernig hún viti að aðilarnir sem hafi staðið að baki hótununum, árásunum, fjárkúgununum og mannráni barnsföður hennar hafi verið meðlimir glæpahópanna Tupamaros og Colectívos og hvernig þeim hafi verið kunnugt um stjórnmálaskoðanir kæranda. Einnig óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um hvort hótunum glæpahópanna hafi verið framfylgt og hvort barnsfaðir kæranda eða aðrir fjölskyldumeðlimir hennar í heimaríki hafi sætt hótunum, ofbeldi eða fjárkúgunum eftir að hún hafi yfirgefið Venesúela.

Hinn 25. mars 2024 bárust kærunefnd svör kæranda ásamt frekari gögnum. Í svörum kæranda kemur fram að framangreind glæpagengi séu fjármögnuð af stjórnvöldum. Hóparnir beri ábyrgð á að stöðva mótmælendur og pólitíska aðgerðarsinna, m.a. með því að drepa, kúga, ráðast á, nauðga og hræða. Vegna stöðu barnsföður hennar sem aðgerðarsinni hafi honum verið rænt af framangreindum glæpahópum við pólitískar aðgerðir sínar. Þá kemur fram að hótanirnar hafi verið viðvarandi og settar fram með ýmsum hætti, munnlega, með símtölum og með skilaboðum á samskiptamiðlum. Aðspurð um það hvort hótununum hafi verið framfylgt kvað kærandi að barnsföður hennar hafi verið rænt líkt og áður hafi komið fram. Þá hafi jafnframt verið ráðist á kæranda og keyrt á bíl hennar. Kærandi kvaðst þá hafa tjáð skoðanir sínar opinberlega og lagði fram skjáskot af Facebook síðu sinni. Þá greindi kærandi frá því að meðlimir glæpahópanna séu meðvitaðir um stjórnmálaskoðanir hennar vegna sögu hennar sem aðgerðarsinni og vegna þátttöku hennar í mótmælum í mörg ár.

Kærandi hefur lagt fram talsvert magn gagna hjá Útlendingastofnun og hjá kærunefnd máli sínu til stuðnings. Meðal gagna í málinu eru afrit af skjölum sem sýna að kærandi sé aðili að stjórnmálaflokknum Acción Democrática og kveða á um að hún hafi verið virk í starfi þeirra, ljósmyndir af áverkum sem kærandi kveðst hafa hlotið eftir að ráðist hafi verið á hana í mótmælum í júlí 2021 og afrit af læknisvottorðum. Einnig lagði kærandi fram ljósmyndir af bíl og mótorhjóli að því er virðist í kjölfar áreksturs þar sem m.a má sjá fjóra lögreglufulltrúa. Kveður kærandi um hafa verið að ræða atvik þar sem keyrt hafi verið á bíl hennar af ásettu ráði fyrir utan heimili hennar í ágúst 2022. Kærandi lagði einnig fram afrit af lögregluskýrslum vegna framangreindra árásar, mannráns barnsföður hennar og vegna ákeyrslunnar. Einnig lagði kærandi fram myndbönd úr mótmælum þar sem hún kveðst sjást, auk fréttagreinar um morð á einstaklingi árið 2019 sem hún kveður hafa verið nágranna sinn. Meðal þeirra gagna sem kærandi lagði fram með svörum sínum til kærunefndar, dags. 25. mars 2024, eru skjöl frá stjórnarandstöðuhreyfingum í Venesúela að nafni Voluntad Popular og Vente. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi verið virk í mótmælum og starfi samtakanna síðustu ár. Þá lagði kærandi fram skjáskot af Facebook síðu sinni sem sýnir að kærandi hafi þar tjáð pólitískar skoðanir sínar á árunum 2013 til 2018. Kveður kærandi framlögð gögn sýna fram á að hún hafi sætt ofsóknum í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi sem stjórnarandstæðingur, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnmálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísar þjóðfélagshópur einkum til hóps fólks sem umfram það að sæta ofsóknum hefur áþekkan uppruna, bakgrunn, venjur og félagslega stöðu eða hefur sameiginleg einkenni eða lífsskoðanir, svo sem kyngervi, sem eru svo mikilvæg fyrir sjálfsmynd þess að ekki ætti að gera kröfu til að þeim verði breytt, eða hóps fólks sem er álitinn frábrugðinn öðrum í samfélaginu.

Með vísan til framburðar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa frásögn hennar um að hún hafi verið aðili að stjórnmálaflokknum Acción Democrática og tekið þátt í mótmælum gegn yfirvöldum í heimaríki. Þá efast kærunefnd ekki um að hún hafi tekið þátt í starfi samtakanna Voluntad Popular og Vente. Jafnframt er, í ljósi gagna um heimaríki kæranda, ekki ástæða til að draga í efa frásögn hennar um að barnsföður hennar hafi verið rænt árið 2015, að honum hafi verið haldið föngnum í tvo daga án matar og drykkjar og að ráðist hafi verið á kæranda þegar hún hafi verið stödd á mótmælum. Þrátt fyrir að framlögð gögn sanni ekki að einstaklingurinn sem myrtur var í mótmælum árið 2019 hafi verið nágranni hennar þá er ekki ástæða til að draga þá frásögn kæranda í efa. Þá er ekki unnt að útiloka að mágur kæranda hafi einnig verið myrtur í mótmælum árið 2019.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectívos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Þrátt fyrir að kærandi hafi verið skráð í og tekið þátt í starfi stjórnarandstöðuflokka og mætt á mótmæli þá verður ekki séð að hún hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar eða sé útsettari en aðrir mótmælendur fyrir árásum eða hótunum. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir.

Þá horfir kærunefnd til þess að barnsföður kæranda var rænt og honum haldið föngnum í tvo daga árið 2015 eða fyrir 9 árum síðan. Ráða má af frásögn kæranda að hún og barnsfaðir hennar hafi áfram búið á sömu slóðum án þess að atvikið hafi haft frekari afleiðingar, að undanskildum líkamlegum og andlegum afleiðingum fyrir barnsföður kæranda að hennar sögn. Má einnig ráða af framburði kæranda að tengdamóðir hennar, sem kærandi kveður hafa komið að stofnun stjórnmálaflokksins Acción Democrática, sé ennþá búsett í Venesúela ásamt barnsföður kæranda. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 21. mars 2024, var kærandi spurð að því hvort barnsfaðir hennar eða tengdamóðir hafi orðið fyrir áreiti í heimaríki eftir að kærandi flúði landið. Af svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 25. mars 2024, verður ekki séð að þau hafi orðið fyrir frekara áreiti. Barnsfaðir hennar sé þó hræddur en líði betur að vita af börnum sínum hér á landi. Þá vísar kærunefnd til þess að langt sé um liðið frá þeim atvikum sem kærandi greindi frá um að mágur hennar og nágranni hafi verið myrtir í mótmælum árið 2019. Verður jafnframt ekki séð að það hafi tengst kæranda með beinum eða óbeinum hætti þannig að hún sjálf teljist hafa orðið fyrir ofsóknum. Þá er ljóst að nokkur tími leið eftir að kærandi varð fyrir framangreindri árás í júlí 2021 þar til hún yfirgaf heimaríki sitt í nóvember 2022. Þá hefur kærandi lagt fram sakavottorð frá heimaríki, dagsett 5. ágúst 2022, og fengið vegabréf útgefið þar í landi 13. júní 2022. Dregur það úr trúverðugleika kæranda um að yfirvöld í Venesúela beri óvild í garð hennar.

Kærunefnd horfir einnig til þess að kærandi leitaði í a.m.k. tvö skipti til lögreglu og verður ekki annað séð en að lögreglan hafi móttekið kvörtun kæranda og aðhafst þrátt fyrir að hún hafi tiltekið að hún væri andsnúin stjórnvöldum. Verður t.a.m. séð af framlögðum ljósmyndum, sem kærandi kveður sýna að keyrt hafi verið á bíl hennar af ásettu ráði vegna stjórnmálaskoðana hennar, að a.m.k. fjórir lögreglufulltrúar séu staddir á vettvangi. Verður því ráðið að kærandi eða annar aðili hafi tilkynnt atvikið til lögreglu sem hafi í kjölfarið brugðist við. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna fram á að lögreglan hafi fellt niður rannsókn á þeim kvörtunum sem hún hafi lagt fram eða gögn sem á einhvern hátt sýna fram á að yfirvöld hafi ekki eða muni ekki aðhafast frekar í málunum. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún og börn hennar eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana kæranda, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hún og eldri barn hennar, A, hefðu sætt mismunun af samfélaginu vegna stjórnmálaskoðana sinna. Barn hennar hafi ekki mátt mæta á leikvöll eða í íþróttir og hafi kærandi neyðst til að skrá barn sitt í annan skóla. Þá kvaðst kærandi ekki hafa fengið vinnu hjá ríkisreknum skólum og því hafi hún þurft að vinna hjá einkareknum skóla. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásagnir kæranda og A í efa. Með vísan til þess sem rakið hefur verið og að virtum gögnum málsins er þó ljóst að framangreind atvik fela ekki í sér brot á grundvallarmannréttindum kæranda og A og þá verður ekki talið að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2.mgr. og e-lið 3.mgr. ákvæðisins.

Kærandi greindi einnig frá því að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda ef hún og börn hennar snúi til baka til Venesúela af þeirri ástæðu að þau hafi sótt um vernd í öðru landi. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þá eru samlegðaráhrif þeirra atriða sem kærandi hefur vísað til ekki þess eðlis að þau nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barna kæranda nægilega komið á framfæri með framburði hennar og A og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að þau fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Kærunefnd horfir m.a. til þess að börn þau sem um ræðir eru í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings hennar. Líkt og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn málsins með sér að börnin muni njóta stuðnings fjölskyldumeðlima í heimaríki, þ. á m. föður síns, og muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eða börn hennar eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún eigi á hættu ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna. Einnig sé öryggisástand í landinu ótryggt.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hennar og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu við komu aftur til heimaríkis.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa alist upp og búið í Barinas fylki í Venesúela áður en hún hafi yfirgefið landið ásamt börnum sínum. Samkvæmt landaupplýsingum er heimafylki kæranda staðsett í miðvesturhluta landsins. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi kveðst koma frá eða í Venesúela almennt.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra séu ekki þess eðlis að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að sem kona og stjórnarandstæðingur muni hún búa við erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki sínu þar sem auknar líkur séu á því að hún muni sæta ofbeldi og útskúfun af hálfu yfirvalda og samfélagsins við komu til landsins. Þá sé kærandi með gallsteina og þurfi á aðgerð að halda en hún muni ekki eiga kost á að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu í heimaríki sínu. Andlegt ástand kæranda sé einnig bágt.

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og barna hennar og aðstæður í heimaríki þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hennar og barna hennar væri góð. Hún kvaðst vera með gallsteina en læknar hér á landi hafi sagt það vera í lagi. Þá kvað hún andlega heilsu sína vera góða. Kærandi kvaðst hafa haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í heimaríki, m.a. þegar ráðist hafi verið á hana og hún hafi eignast börn sín. Í heilsufarsgögnum sem kærandi lagði fram á kærustigi, dags. 6. febrúar 2023, kemur fram að kærandi hafi nýlega farið á heilsugæsluna í Mjódd vegna kviðverkja og hita og að til stæði að hún færi í ómskoðun. Ekki verður séð að af fyrirliggjandi gögnum að framangreint vandamál hafi krafist frekari meðhöndlunar.

Í heilsufarsgögnum, dags. 5. apríl 2023, kemur fram að í sálfræðitíma hafi kærandi greint frá því að hafa verið nauðgað af frænda sínum þegar hún hafi verið 12 ára gömul og það hafi ávallt haft mikil áhrif á hana. Hún hafi greint frá því að atvikið sem hafi leitt til þess að hún hafi ákveðið að flýja heimaríki sitt hafi verið þegar hún hafi komist að því að ungri stúlku í skóla barns hennar hafi verið nauðgað. Kærandi hafi viljað koma í veg fyrir að það kæmi fyrir börn sín. Fram kemur að kærandi hafi væg einkenni kvíða og þunglyndis. Hún sé mjög stressuð vegna stöðu sinnar hér á landi og óttist að fara aftur til heimaríkis. Í gögnum, dags. 17. ágúst 2023, kemur fram að kærandi sé virk og lausnamiðuð og hafi sótt um vinnur hér á landi. Hún glími ennþá við kvíða og svefntruflanir en sýni góðan skilning og góða hæfni til að takast á við ástand sitt.

Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hún eða börn hennar glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.  Þá verður gengið út frá því að kæranda standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna afleiðinga kynferðisbrotsins sem hún kveðst hafa sætt telji hún þörf á slíku. Samkvæmt landaupplýsingum hefur dómsmálaráðherra Venesúela sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Verður því ekki séð að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa starfað sem kennari í einkaháskóla í heimaríki. Hún hafi búið í einbýlishúsi í eigu tengdamóður sinnar í heimaríki ásamt barnsföður sínum og börnum og hafi hún átt nægan pening fyrir mat og annarri nauðsynjavöru. Kærandi kvað eldra barn sitt hafa gengið í skóla. Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki en bæði tengdamóðir hennar og barnsfaðir búi þar. Af gögnum málsins verður talið að hún hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Kærandi er ung að árum og bera gögn með sér að hún sé almennt heilsuhraust og vinnufær. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda og barna hennar við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kæranda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún og börn hennar hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 30. nóvember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda og barna hennar falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli hennar og barna hennar. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni og börnum hennar frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hún væri búin að eignast vini hér á landi. Einnig kvaðst hún eiga frænda á Spáni en þau væru ekki mjög náin. Kærandi kvaðst hafa komið hingað til lands til að gefa af sér og hún sé viss um að komist verði að sanngjarnri og heiðarlegri niðurstöðu í máli hennar.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hennar og barna hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar brottvísað, kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára og veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barna hennar til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hún landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Þorsteinn Gunnarsson

Sindri M. Stephensen                                                                    Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum