Málþing um börn og samgöngur
Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember (ath. ný dagsetning) frá kl. 12:30 til 16:30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi (Ráðhúsi Garðabæjar).
Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.
Dagskrá
12:30 – Málþing sett
- Ávörp
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs
- Umferðaröryggi - okkar mál!
Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur
- Hvernig við sjáum umferðaröryggið.
Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
- Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu
Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði
- „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni
- Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé
14:20 – Kaffihlé
- Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur
- Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps
- Öryggi barna í Reykjavík
Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon
- Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé
- Gamanmál
16:30 – Málþingi lýkur
- Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.