Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrsti fundur félags- og barnamálaráðherra

Frá vinstri: Salvör Nordal umboðsmaður barna, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Auður Bjarnadóttir og Inga Huld Ármann. - mynd

Nú um áramótin tók Ásmundur Einar Daðason við titlinum félags- og barnamálaráðherra, en sá titill er m.a. til marks um áherslur ráðherrans og ríkisstjórnarinnar á málefni barna og ungs fólks. Því var ánægjulegt að fyrsti fundur ráðherra á nýju ári hafi verið með fulltrúum barna og ungmenna, Ingu Huld Ármann og Auði Bjarnadóttur sem eru meðlimir ráðgjafarhóps umboðsmanns barna, og Salvöru Nordal, umboðsmanni barna á Íslandi. Á fundinum voru ræddar helstu áskoranir sem fyrir nýju ráðuneyti liggja, 30 ára afmæli barnasáttmálans á þessu ári sem og hvernig best væri að fá fram tillögur og framlag barna og ungs fólks í þeirri vinnu sem framundan er.

Ásmundur Einar Daðason segir að nauðsynlegt sé að eiga víðtækt samráð þegar hugað er að málefnum barna og þá sérstaklega við börn, sem séu okkar mikilvægustu ráðgjafar.

„Þrátt fyrir að flestir telji að börn og ungmenni eigi að fá tækifæri til að tjá sig og taka þátt í mótun samfélagsins þá virðist sem ekki sé endilega tekið tillit til skoðana þeirra og að möguleikar barna á slíkri þátttöku séu mismunandi, t.d. eftir búsetu. Það er því viðeigandi að með nýju ráðuneyti, og á afmælisári barnasáttmálans sem einmitt leggur áherslu á að börn fái að koma fram sínum skoðunum, að við hefjum árið með röddum barna og vinnum í framhaldinu markvisst að því að koma á viðeigandi leiðum fyrir börn og ungmenni til að koma skoðunum sínum á framfæri við ráðherra barnamála“. Sagði Ásmundur Einar að loknum fundinum í dag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta